Sambandsleysi vegna bilunar hjá Microsoft
13.11.2026
Vegna bilunar hjá Microsoft, sem greint hefur verið frá í fjölmiðlum, liggja sum upplýsingakerfi Ferðamálastofu niðri. Þannig kemst starfsfólk m.a. ekki í tölvupóst og getur því ekki svarað erindum en tölupóstur sem stofnuninni hefur verið sendur ætti að skila sér þegar kerfin komast í lag. Þá er heldur ekki hægt að afgreiða erindi með venjubundnum hætti í gegnum skjala- og málakerfi. Við bendum á netspjallið hér á vefnum í millitíðinni.