Fara í efni

SAF mótmælir boðaðri gjaldtöku við Geysi

© arctic-images.com
© arctic-images.com

Samtök ferðaþjónustunnar mótmæla harðlega áformum landeigendafélags Geysis að hefja innheimtu gjalds á Geysissvæðinu á næsta ári, segir í tilkynningu frá samtökunum.

Skýtur skökku við

Einnig segir að Samtök ferðaþjónustunnar hafi lýst sig reiðubúin til viðræðna við stjórnvöld um hugmyndir að útfærslu á náttúrupassa sem staðið geti undir viðhaldi og uppbyggingu ferðamannastaða. "Stjórnvöld eru nú með til skoðunar mögulegar útfærslur á náttúrupassa og því skýtur það skökku við að landeigendur, á einum helsta ferðamannastað landsins, skuli tilkynna gjaldtöku á sama tíma og slík skoðun stendur yfir. Gera má ráð fyrir að Geysissvæðið, rétt eins og aðrir ferðamannastaðir, geti sótt fjármagn til uppbyggingar í sjóðinn og því væri það ótækt að ferðamenn þurfi auk náttúrupassans að greiða inn á helstu ferðamannastaði. Þess ber að geta að ríkið á 35% í Geysissvæðinu og er ríkið þá komið í tvöfalda innheimtu á þessu svæði. Þess má geta að ríkið á hverina Geysi og Strokk sem hljóta að teljast helsta söluvaran," segir í tilkynningunni.

Þá er vakin athygli á að Framkvæmdasjóður ferðamannastaða úthlutaði á þessu ári 20 milljónum til að fjármagna hugmyndasamkeppni og deiliskipulagsvinnu fyrir Geysissvæðið.