Fara í efni

SAF lýsa áhyggjum af hugmyndum um skattahækkanir á ferðaþjónustu

logoSAF
logoSAF

Samtök ferðaþjónustunnar hafa lýst yfir áhyggjum vegna hugmynda um skattahækkanir sem fram hafa komið í fréttum að undanförnu. Telja samtökin einsýnt að þær muni leiða til fækkunar ferðamanna ef af verður.

Í frétt frá SAF segir:

"Í fréttum að undanförnu hefur verið greint frá alls kyns hugmyndum og tillögum um miklar skattahækkanir á m.a. flestallar greinar ferðaþjónustu og ef hugmyndir þessar ná fram þá stefnir augljóslega í fækkun erlendra ferðamanna hingað til lands.

Ferðaþjónustan er sú atvinnugrein sem hvað mest er horft til í þeim efnahagsþrengingum sem þjóðin býr við nú og hefur lækkun íslensku krónunnar bætt samkeppnisstöðuna.   Áform eru uppi um aukið flug til landsins á næsta ári og hafa Samtök ferðaþjónustunnar ítrekað bent á sóknarfæri og að ein skjótvirkasta leiðin til tekjuöflunar í þjóðfélaginu sé að fá hingað fleiri erlenda ferðamenn.  Helstu samkeppnislönd eru að setja stóraukið fé til landkynningar og því þarf íslensk ferðaþjónusta á því að halda að stjórnvöld gangi í takt við greinina.  Þetta gengur þvert á yfirlýsingar allra stjórnmálaflokkanna fyrir síðustu kosningar um að nýta sóknarfæri í ferðaþjónustu.

Með stórhækkuðum sköttum verður þetta dýrmæta sóknarfæri ekki lengur til staðar.  Hækkun nú á flugfarseðlum, hótelgistingu, veitingum, landflutningum og afþreyingu mun leiða til fækkunar ferðamanna, lækkunar gjaldeyristekna og þar með óþarfa atvinnuleysis."