Fara í efni

Sænskur vefur bætist við

Forsíða sænska vefsins
Forsíða sænska vefsins

Nú hefur bæst við sænsk útgáfa af landkynningarvef Ferðamálstofu www.visiticeland.com. Þá er norskur vefur einnig í vinnslu og má reikna með að hann verði opnaður innan tíðar.

Eftir að norsk útgáfa bætist við verður landkynningarvefurinn orðinn á 8 tungumálum, þ.e. ensku, dönsku, þýsku, frönsku, spænsku, sænsku og norsku auk íslensku. Þá eru skrifstofur Ferðamálastofu í New York og Frankfurt með vefi sem sinna þeim mörkuðum sérstaklega. Eins og áður hefur komið fram er umferð um landkynningarvefi Ferðamálastofu sívaxandi enda alkunna að mikilvægi Internetsins í öllu markaðsstarfi er alltaf aðaukast, ekki síst í ferðaþjónustu.

Mynd: Forsíða sænska vefsins.