Rýrnun jökla eykur hættu í jöklaferðum
Mikilvægt er að ferðaþjónustufyrirtæki sem fara með fólk á jökla séu meðvituð um að vegna mikillar rýrnunar þeirra gerast jöklaferðir nú sífellt hættulegri. Víða hafa komið í ljós áður óþekkt sprungusvæði sem geta verið hættuleg ferðamönnum.
Öryggisáætlanir taki mið af þessum nýju aðstæðum
Þessar nýju aðstæður kalla á að ferðaþjónustufyrirtæki geri ráð fyrir þeim í öryggisáætlunum sínum. Á vegum Veðurstofunnar er unnið að uppfærslu á sprungukortum sem meðal annars verða aðgengileg hjá Safetravel. Í millitíðinni er mikilvægt að ferðaþjónustufyrirtæki kynni sér sérstaklega aðstæður á þeim svæðum sem ferðast á um.
Verður viðvarandi í vetur
Ólíklegt er að ástandið batni í vetur en mælingar Veðurstofunnar sýna að helstu jöklar hafa rýrnar óvenju mikið síðustu ár. Annan veturinn í röð hefur snjóað óvenju lítið og úrkoma sem fellur á jökla að talsverðu leyti verið rigning. Við það bættust óvenjuleg hlýindi síðasta vor og þeim fylgdu hlýtt og sólríkt sumar, líkt og Hrafnhildur Hannesdóttir, fagstjóri jöklarannsókna hjá Veðurstofu Íslands, fer yfir í ítarlegri umfjöllun visir.is