Fara í efni

Reynt að svíkja fé út úr gististöðum

Hótelherbergi
Hótelherbergi

Á vef SAF er greint frá því að undanfarna daga hefur borið nokkuð á hótel- og gistirýmispöntunum erlendis frá þar sem uppgefin eru erlend kortanúmer til greiðslu. Síðan er hætt við bókun og viðkomandi seljandi þjónustu beðinn að endurgreiða færslurnar beint með peningasendingu erlendis, að því er segir í tilkynningu frá lögreglunni.

Í öllum tilfellum er þetta maður sem kynnir sig sem Kazim Abdul. Lögreglan vill benda hótel- og gistihúsaeigendum og starfsfólki þeirra á að verða ekki við slíkum beiðnum ef hinn minnsti vafi leikur á að um lögmæt viðskipti geti verið að ræða.