Rannsóknaráætlun Ferðamálastofu 2026-2028 birt í samráðsgátt
Rannsóknaráætlun Ferðamálastofu sem nær til áranna 2026-2028 hefur verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Rannsóknaráætlunin fæst við þá gagnaöflun, greiningar og rannsóknir sem stjórnvöldum er nauðsynleg til ákvörðunartöku um uppbyggingu og þróun ferðaþjónustu.
Rannsóknaráætlunin á sér stoð í reglugerð nr. 20/2020 um gagnaöflun og rannsóknir á sviði ferðamála, þar sem kveðið á um að Ferðamálastofa skuli móta og láta framkvæma rannsóknaráætlun til þriggja ára í senn.
Ráðgefandi nefnd um gagnaöflun og rannsóknir
Liður við undirbúning og gerð rannsóknaráætlunarinnar er aðkoma ráðgefandi nefndar um gagnaöflun og rannsóknir. Með samsetningu nefndarinnar er leitast við að draga að vísindalega þekkingu, kunnáttu og sérfræði hagsmunaaðila í greininni. Rannsóknaráætlunin 2022-2028 nýtir ráðgjöf nefndarinnar en er aðlöguð að starfsemi Ferðamálastofu og þeim fjárheimildum sem stofnunin hefur til umráða.
Verkefni og hugmyndir að verkefnum
Í rannsóknaáætluninni er farið yfir þau 7 meginverkefni sem Ferðamálastofa var með í vinnslu á síðari hluta árs 2025 og ná inn á tímabil rannsóknaráætlunar fyrir árin 2026–2028. Þá er einnig gerð grein fyrir verkefnishugmyndum sem ráðgefandi nefnd tók saman og Ferðamálastofa tekur heilshugar undir að séu hagnýtar og myndu hafa jákvæð áhrif fyrir ferðaþjónustu ef þær yrðu að veruleika.
Fyrri rannsóknaráætlanir
Fyrri rannsóknaráætlanir sem ná aftur til 2020 er að finna hér á vefnum.