Fara í efni

Rannsókn á viðhorfi til Íslands

NatturaIslands
NatturaIslands

Útflutningsráð Íslands og Ferðamálastofa  hafa fengið ParX Viðskiptaráðgjöf IBM til að rannsaka  viðhorf meðal almennings til Íslands í þremur löndum:  Bretlandi, Þýskalandi og Danmörku en  löndin eru meðal stærstu viðskiptamarkaða Íslands.

Markmið rannsóknarinnar er að byggja upp hagnýt viðmið sem nýtast við mat og uppbyggingu á ímynd landsins. Í því samhengi verður viðhorf almennings til lands og þjóðar metið sem og viðhorf til íslenskrar vöru, þjónustu og til landsins sem áfangastaðar fyrir ferðamenn.

Hefur ímyndin beðið hnekki?
Mikil umræða hefur verið á síðustu mánuðum um að ímynd Íslands hafi beðið hnekki á alþjóðavettvangi í kjölfar bankahrunsins og hana þurfi að bæta. Ímynd er margslungið fyrirbæri en ein af birtingarmyndunum er upplifun almennings. Náttúra landsins hefur jafnan haft vinninginn þegar viðhorf til landsins hafa verið könnuð á erlendri grundu. Stöndum við núna frammi fyrir því, þegar landið er nefnt á nafn að gjaldþrot þjóðar sé það fyrsta sem kemur upp í hugann? Þessum spurningum og fleirum verður reynt að svara með rannsókninni.

Niðurstaðna að vænta í apríl
Fáar viðhorfsrannsóknir hafa verið gerðar um Ísland en samstarfsverkefnið Iceland Naturally hefur þó staðið fyrir slíkum rannsóknum í Bandaríkjunum og Evrópu. Þá lét Ferðamálastofa gera viðhorfsrannsókn til Íslands og hvalveiða í fimm löndum árið 2007. Þessar rannsóknir verða notaðar til viðmiðunar og samanburðar. Niðurstaðna er að vænta í apríl. Í framhaldinu verður síðan horft til þess hvort fleiri rannsóknir verði framkvæmdar eða aðrir markhópar skoðaðir.

Nánari upplýsingar veita:
Inga Hlín Pálsdóttir hjá Útflutningsráði Íslands, inga@utflutningsrad.is, sími 511 4000/824 4375 og Oddný Þóra Óladóttir, Ferðamálastofu oddny@icetourist.is, sími 535 5500.