Fara í efni

Rannsókn á markaðsímynd fyrirtækja sem nota visthæfa orkugjafa

Frett260706
Frett260706

Land- og ferðamálafræðiskor Háskóla Íslands og Rannsóknamiðstöð ferðamála auglýsa eftir áhugasömum nemendum til að rannsaka markaðsímynd fyrirtækja í ferðaþjónustu sem nýta visthæft eldsneyti. Um er að ræða meistaranám í ferðamálafræðum við Háskóla Íslands

Viðhorf ferðamanna kannað
Verkefnið mun m.a. leitast við að kanna viðhorf ferðamanna til nýtingar umhverfisvæns eldneytis og kortleggja hvort tveggja afstöðu ferðamanna og áhrif á markaðsstöðu fyrirtækja í ferðaþjónustu sem nýta visthæft eldsneyti. Verkefnið er samvinnuverkefni Rannsóknamiðstöðvar ferðamála, land- og ferðamálafræðiskorar Háskóla Íslands og íslenskrar NýOrku. Nemandi mun hafa starfsaðstöðu á NýOrku. Fyrir hendi er fjármögnun nemanda (laun) í þrjá mánuði. Áframhaldandi fjármögnun er háð umsóknum um áframhaldandi styrki.

Meistaranám í ferðamálafræðum
Meistaranám í ferðamálafræðum við HÍ er að öllu jöfnu tveggja ára rannsóknanám (120e) á sérhæfðu sviði ferðamálafræða að loknu BS námi sem gefur prófgráðuna magister scientiarum, MS. Námið samanstendur af sjálfstæðu rannsóknaverkefni (60e eða 90e) og námskeiðum (60e eða 30e).Frekari upplýsingar um meistaranám við land- og ferðamálafræðiskor HÍ er að finna á https://ugla.hi.is/kennsluskra/index.php?tab=skoli&chapter=content&id=11259&kennsluar=2008
 
Frekari upplýsingar
Áhugasamir hafi samband við Rannveigu Ólafsdóttur í síma 5255482 eða á netfang ranny@hi.is