Fara í efni

Ráðstefna um strandmenningu

sildarbatur
sildarbatur

Strandmenning Íslands, staða hennar og framtíð, er viðfangsefni ráðstefnu sem haldin verður á Radisson SAS hótel Sögu þann 5. október næstkomandi. Þar eru á dagskrá fjöldi áhugaverðra fyrirlesra sem tengjast strandmenningu með einum og öðrum hætti.

Að ráðstefnunni standa Íslenska vitafélagið, Ferðamálastofa, Ferðamálasamtök Íslands, Siglingastofnun, Þjóðminjasafn Íslands, Húsafriðunarnefnd, Fornleifavernd ríkisins og Samtök Íslenskra Sjóminjasafna.

Sigurbjörg Árnadóttir, formaður Íslenska vitafélagsins, setur ráðstefnuna en síðan flytur Össur Skarphéðinsson, ráðherra byggðamála og verðandi ferðamálaráðherra, ávarp. Einar Kristinn Guðfinnsson, ráðherra sjávarútvegs og landbúnaðar, flytur einnig ávarp síðar á ráðstefnunni. Efni ráðstefnunnar skiptist í 4 meginþætti og innan hvers um sig eru fluttir nokkrir fyrirlestrar.

  • Auður og atvinna við haf og strönd
  • Hvað geta Íslendingar lært af nágrönnum sínum?
  • Að virða sinn menningararf
  • Tækifæri bragðlaukanna

Ráðstefnugjald:er 6000 krónur og innifalið eru ráðstefnugögn, hádegisverðarhlaðborð og kaffi. Skráning á ráðstefnuna er hér fyrir neðan Nánari upplýsingar: 466 1266 eða 695 1266

Dagskrá ? prentvæn útgáfa (PDF)

Dagskrá:
09:00 Innritun og afhending gagna
09:30  Setning ráðstefnu: Sigurbjörg Árnadóttir, formaður Íslenska vitafélagsins
09:40 Ávarp: Össur Skarphéðinsson, ráðherra byggðamála og verðandi ferðamálaráðherra

Auður og atvinna við haf og strönd
Umræðustjóri: Ragnhildur Sigurðardóttir, Landbúnaðarháskólanum Hvanneyri

09:50 Fornminjar við strendur landsins - staða og tækifæri
Agnes Stefánsdóttir, Fornleifavernd ríkisins
10:05 Vitar sem hluti íslenskrar strandmenningar
Magnús Skúlason, Húsafriðunarnefnd ríkisins
10:20 Strandmenningarbærinn Húsavík. Hörður Sigurbjarnarson, framkvæmdastjóri Norður-Siglingar, Húsavík
10:35 Pallborðsumræður um stöðuna. Fyrirlesarar, ásamt Ragnari Edwardssyni, minjaverði Vestfjarða og Elíasi Bj. Gíslasyni, Ferðamálastofu

11:00 Kaffihlé

Hvað geta Íslendingar lært af nágrönnum sínum?
Umræðustjóri: Guðrún Þóra Gunnarsdóttir, Háskólanum á Hólum

11:20 Staða og stefna strandmenningar í Noregi
Geir Tvedt, ráðgjafi hjá Riksantikvaren
11:45 Världsarvet Höga Kusten
Ernst Thurdin, Kramfors kommun í Svíþjóð
12:15 Pallborðsumræður: Hvað geta Íslendingar lært af nágrönnum sínum?
Fyrirlesarar, ásamt Pétri Rafnssyni, Ferðamálasamtökum Íslands, Valdimar Harðarsyni, landlagsarkitekt og Öldu Davíðsdóttur, Patreksfirði

 12:35 Hádegishlé

13:20  Ávarp: Einar Kristinn Guðfinnsson, ráðherra sjávarútvegs og
landbúnaðar.

Að virða sinn menningararf
Umræðustjóri: Arnheiður Hjörleifsdóttir, Landsskrifstofu Staðardagskrár 21 á Íslandi

13:30 Sjóminjasöfn ? Vettvangur íhaldssemi og nýsköpunar
Örlygur Kristfinnsson, Síldarminjasafninu á Siglufirði
13:45  Þjóðtrú sjómanna
Hlíf Gylfadóttir, mannfræðingur
14:00  Kveðið við haf og strönd
Gunnsteinn Ólafsson, tónlistarmaður  
14:15  Pallborðsumræður: Hvernig er best að koma arfleiðinni til skila?
Fyrirlesarar, ásamt Þorvaldi Friðrikssyni, fréttamanni og Guðmundi Páli Ólafssyni, rithöfundi

14:45  Kaffihlé

Tækifæri bragðlaukanna
Umræðustjóri Laufey Haraldsdóttir, Háskólanum á Hólum

15:15 Súrt og kæst
Guðmundur Guðmundsson, matvælafræðingur
15:30  Úr faðmi hafsins
Gunnar Karl Gíslason, matreiðslumeistari Vox restaurant
15:45  Pallborðsumræður: Tækifæri bragðlaukanna
Fyrirlesarar, ásamt Guðrúnu Hallgrímsdóttur frá Matur, saga, menning og  Pétri Ágústssyni, útgerðarstjóra Sæferða i Stykkishólmi
 
16:15 Samantekt: Guðrún Helgadóttir, Háskólanum á Hólum
16:30 Ráðstefnuslit