Fara í efni

Ráðstefna um golf og ferðaþjónustu

Golf vestmannaeyjum
Golf vestmannaeyjum

Samhliða Ferða- og golfsýningunni 2007 sem fram fer í Fífunni um næstu helgi 20. -22. apríl verður ráðstefna á laugardeginum um golf og ferðaþjónustu. Þar verður reynt að varpa ljósi á mikilvægi golfíþróttarinnar fyrir ferðaþjónustuna og hvernig við eigum að kynna golf á Íslandi fyrir innlendum sem erlendum ferðamönnum.

Ráðstefnan fer fram á laugardeginum 21. apríl og hefst hún klukkan 13:00 og stendur til 16:00.

Dagskrá ráðstefnunnar er eftirfarandi:

  • 13:00 Forseti GSÍ, Jón Ásgeir Eyjólfsson, Golfíþróttin - sóknarfæri ferðaþjónustunnar.
  • 13:15 Rob Holt framkvæmdastjóri Ryder Cup í Wales 2010, Mikilvægi Ryder Cup fyrir golf og ferðaþjónustu í Wales.
  • 13:45 Jón Karl Ólafsson forstjóri Icelandair, Er golf á Íslandi eitthvað sem við getum selt?
  • 14:15 Margeir Vilhjálmsson framkvæmdastjóri Black Sand, Uppbygging alþjóðagolfvallar á Íslandi.
  • 14:45 Hörður Þorsteinsson framkvæmdastjóri GSÍ, Hvar nálgumst við erlenda kylfinga, kynning á Solheim Cup 2007.
  • 15:15 Ásbjörn Björgvinsson Golfklúbbi Húsavíkur, Eru Íslendingar ekki líka ferðamenn?
  • 15:45 Pallborðsumræður og samantekt. Magnús Oddsson ferðamálastjóri.

Golfsamband Íslands vonast eftir að sjá sem flesta ferðaþjónustuaðila á ráðstefnunni sem fer fram í hátíðarsal Smáraskóla sem er í göngufæri við sýningarhöllina í Fífunni.