Fara í efni

Ráðstefna á vegum Hafíssetursins á Blönduósi

Hafís
Hafís

Laugardaginn 31. maí verður haldin ráðstefna um norðurslóðir á vegum Hafíssetursins á Blönduósi. Dagurinn markar einnig opnun setursins og í lok ráðstefnunnar verður sýnd heimildarmynd um leiðangur inn í botn Scoresbysunds. Ráðstefnan verður í Félagsheimilinu á Blönduósi klukkan kl.13-18:30

Ráðstefnustjóri verður Skúli Skúlason rektor Háskólans á Hólum í Hjaltadal og munu ýmsir kunnir fræðimenn flytja erindi, m.a. Rögnvaldur Ólafsson eðlisfræðingur og prófessor við Raunvísindadeild Háskóla Íslands. Þór Jakobsson veðurfræðingur og einn helsti fræðimaður á svíði hafíssrannsókna á Íslandi mun segja nokkur orð um sjóleiðina til Kína. Þór er einnig höfundur texta sem notaður er á sýningunni í Hafíssetrinu. Að ráðstefnunni lokinni mun Arnar Þór Sævarsson bæjarstjóri  Blönduósbæjar opna Hafíssetrið og slíta ráðstefunni.

Á Hafíssetrinu er fjallað um hafís á fjölbreyttan og fræðandi hátt. Setrið er til húsa í Hillebrandtshúsi, Blöndubyggð 2, en þetta hús er eitt elsta timburhús landsins. Setrið er opið alla daga á sumrin frá 11:00-17:00.

Nánari upplýsingar í síma 4524848 eða á netfanginu hafis@blonduos.is. Forstöðumaður Hafíssetursins í sumar verður Katharina Angela Schneider.

Dagskrá ráðstefnu:

Norðurslóðir, náttúra og mannlíf -
ráðstefna á vegum Hafíssetursins á Blönduósi.
Haldin í Félagsheimilinu á Blönduósi laugardaginn 31. maí, kl. 13:00-18:30.

 
Ávarp og setning:  Arnar Þór Sævarsson bæjarstjóri Blönduósbæjar.

I.  MÁLÞING
Ráðstefnustjóri:  Skúli Skúlason rektor Háskólans á Hólum í Hjaltadal.
 
Þór Jakobsson veður- og hafísfræðingur:
Nokkur orð um sjóleiðina norður til Kína.
 
Ingibjörg Jónsdóttir landfræðingur og dósent við Raunvísindadeild Háskóla Íslands:  Hafískönnun og rannsóknir.
 
Halldór Björnsson haf- og veðurfræðingur, deildarstjóri á Veðurstofu Íslands: 
Loftslagsbreytingar - áhrif og afleiðingar.
 
Kaffihlé kl. 14:30 ? 15:00
 
Níels Einarsson mannfræðingur og forstöðumaður Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar:
Mannlíf, loftslag og lýðheilsa á norðurslóðum.
 
Trausti Valsson skipulagsfræðingur og prófessor, verkfræðideild Háskóla Íslands: 
Breytt heimsmynd í norðri á 21. öld.
 
Rögnvaldur Ólafsson eðlisfræðingur og prófessor við Raunvísindadeild Háskóla Íslands: 
Hafíssetrið á Blönduósi í litrófi safna og setra á Íslandi.
 
Skúli Skúlason slítur málþingi.

II.  Framhald í bíósal kl. 17:00
Leiðangur inn í botn Scoresbysunds.  Frumsýning heimildarmyndar eftir Svein M. Sveinsson kvikmyndagerðarmann.  Þór Jakobsson segir frá fræðslu- og könnunarferð á kanadíska skipinu Explorer á Austur-Grænlandi í ágúst 2006.
 
III. Framhald í Hafíssetrinu kl. 18:30
Arnar Þór Sævarsson opnar Hafíssetrið þriðja sumarið og slítur ráðstefnunni. Boðið verður upp á léttar veitingar.

AÐGANGUR ÓKEYPIS,
A L L I R   V E L K O M N I R !

Nánari upplýsingar í síma 4524848
Netfang: hafis@blonduos.is