Fara í efni

Ráðist í kynningarherferð fyrir VAKANN

Vakinn lógó
Vakinn lógó

Í vikunni skrifuðu Ferðamálastofa og H:N Markaðssamskipti undir samstarfssamning vegna VAKANS, en framundan er kynningarherferð á VAKANUM fyrir íslensk ferðaþjónustufyrirtæki og innlenda ferðamenn.

Jafnframt er unnið að því að leggja drög að kynningu á VAKANUM fyrir erlendan markað, en sú kynning hefst formlega á Vestnorden í byrjun október. Töluverðar væntingar eru til þessa samstarfs, enda miklir hagsmunir í húfi fyrir íslenska ferðaþjónustu að fyrirtækin sameinist um að auka gæði, öryggi og umhverfisvitund og gerist þátttakendur í nýja gæða- og umhverfiskerfinu.

Nánar á www.vakinn.is