Fara í efni

Ráðið í rannsóknastöðu á Akureyri.

Bergþóra Aradóttir hefur verið ráðin til skrifstofu Ferðamálaráðs Íslands á Akureyri og kemur til með að sinna rannsóknum.

Bergþóra er 36 ára og er gift Starra Heiðmarssyni og eiga þau þrjú börn.
1987-1989 stundaði Bergþóra nám í skipulags og markaðsfræðum í ferðaþjónustu við Opplands Distriktshögskola í Noregi. Árið 1993 lauk hún Bs gráðu í landafræði frá Háskóla Íslands og árið 1998 Masters gráðu í landafræði frá Uppsala Universitet í Svíþjóð.

Auk þess að hafa verið í námi á undanförnum árum og að sinna fjölskyldu hefur Bergþóra starfað við ferðaþjónustu og kennslu.
Bergþóra hóf störf þann 15. janúar 2001.