Fara í efni

Ráðgjöf um rannsóknarverkefni 2023-25

Stjórnarfoss. -Mynd: Markaðsstofa Suðurlands/Páll Jökull Pétursson
Stjórnarfoss. -Mynd: Markaðsstofa Suðurlands/Páll Jökull Pétursson

Fyrr á árinu birti Ferðamálastofa rannsóknaráætlun sína, sem nær til áranna 2022-2024. Veigamikill þáttur við árlega mótun og gerð rannsóknaráætlunar Ferðamálastofu er aðkoma ráðgefandi nefndar um gagnaöflun og rannsóknir. Hefur nefndin nú skilað ráðgjöf sinni fyrir árin 2023-25.

Með samsetningu nefndarinnar er leitast við að draga að vísindalega þekkingu, kunnáttu og sérfræði hagsmunaaðila í greininni. Nefndin fjallaði um ráðgjöf sína um verkefni fyrir rannsóknaráætlun áranna 2023-25 á fimm fundum á tímabilinu 6. apríl til 22. júní 2022. Auk þess gengu drög að ráðgjöf nefndarinnar milli nefndarmanna til athugasemda fram í ágúst. Ráðgjöf nefndarinnar má nálgast hér að neðan.

Ráðgjöfin skiptist í fjóra hluta:

I. forsendur ráðgjafarinnar
II. Ráðgjöf um verkefni í vinnslu
III. Ný verkefni
IV. Önnur atriði

Ferðaþjónusta í núverandi mynd er umfangsmikil ung atvinnugrein með stórt framlag í verga landsframleiðslu. Mikið vantar upp á að hún hafi fundið sér það skipulag og farveg sem hagkvæmastur er og liggja fyrir fjöldi hagnýtra rannsóknarverkefna sem ekki hefur verið sinnt sem leiðir af sér veikari þekkingargrundvöll og lakari ákvörðunartöku um téðan farveg og skipulag. Þar sem ekki voru taldar horfur á verulegu fé í ný gagnaöflunar- og/eða rannsóknarverkefni að sinni beindist starf nefndarinnar einkum að yfirstandandi verkefnum og hvort og þá hvernig þau megi bæta. Hefur nefndin í því efni notið greiðvikinnar aðstoðar þeirra starfsmanna Ferðamálastofu sem hafa umsjón með viðkomandi verkefnum. Nefndin hefur hins vegar ýmsar hugmyndir um ný gagnleg rannsóknarverkefni. Var slíkum hugmyndum komið á framfæri í ráðgjöf fyrir tímabilið 2021-23 og er enn haldið til haga í ráðgjöf hennar fyrir tímabilið 2023-25.

Nefndina skipa:

  • Dr. Ragnar Árnason, prófessor emeritus við Háskóla Ísla
    • – tilnefndur af Ferðamálastofu, formaður.
  • Ingibjörg Sigurðardóttir, deildarstjóri Ferðamáladeildar og lektor við Háskólann á Hólum
    • – tilnefnd af samstarfsnefnd háskólastigsins.
  • Dr. Gunnar Þór Jóhannesson, prófessor við Háskóla Íslands
    • – tilnefndur af samstarfsnefnd háskólastigsins.
  • Unnur Valborg Hilmarsdóttir, sveitarstjóri Húnaþings vestra
    • – tilnefnd af Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
  • Vilborg Helga Júlíusdóttir, hagfræðingur SAF
    • – tilnefnd af Samtökum ferðaþjónustunnar.
  • Hildur Kristjánsdóttir, sérfræðingur á skrifstofu ferðamála og nýsköpunar
    • – tilnefnd af ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.
  • Gunnar Geir Gunnarsson, deildarstjóri öryggis- og fræðsludeildar Samgöngustofu
    • –tilnefndur af samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.

 Ráðgjöf um rannsóknarverkefni 2023-25