Fara í efni

Öskudagurinn 2009

Öskudagur 2009
Öskudagur 2009

Venju fremur gestkvæmt var á skrifstofu Ferðamálastofu á Akureyri í morgun. Rík hefð er í bænum fyrir öskudeginum þar sem börn fara í hópum um bæinn og syngja í skiptum fyrir eitthvað góðgæti.

Hóparnir sem heimsóttu Ferðamálastofu voru af ýmsum stærðum og gerðum. Í þeim mátti samkvæmt venju finna hinar ýmsu kynjaverur, allt frá englum til hvers kyns púka og illmenna, þ.e.a.s. á yfirborðinu. Söngurinn var að sama skapi í ýmsum tóntegundum en allir fóru sælir á braut með nammi í poka. Starfsfólk Ferðamálastofu var að sjálfsögðu uppáklætt í tilefni dagsins en engum sögum fer að söngnum. Frá vinstri: Helena Karlsdóttir lögfræðingur, Sveinn Traustason umhverfisfulltrúi, Rannveig Guðmundsdóttir verkefnastjóri, Halldór Arinbjarnarson verkefnastjóri, Elías Gíslason forstöðumaður og Ólafur Aðalgeirsson rekstrarstjóri.

Meðfylgjandi myndir voru teknar af nokkrum hópum sem litu við í morgun.