Fara í efni

Óskað umsagnar um breytingar á lögum um skipan ferðamála

Mynd: ©Ragnar Th. Sigurðsson

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur birt drög að frumvarpi um breytingu á lögum um skipan ferðamála, nr. 73/2005. Óskað er eftir umsögnum og er frestur til að skila þeim til og með 25. maí næstkomandi.

Helstu breytingar

Helstu breytingar frumvarpsins fela í sér breytta tilgangsgrein laganna, hlutverk Ferðamálastofu er uppfært, breytta skipan Ferðamálaráðs, breytingar á skilyrðum leyfisveitinga, nýmæli um skyldu ferðaþjónustuaðila til að setja sér öryggisáætlanir og heimild Ferðamálastofu til að leggja dagsektir á aðila sem brjóta gegn ákvörðunum stofnunarinnar.

Áfram unnið að endurskoðun málaflokksins

Frumvarpið er liður í yfirferð og endurskoðun ráðuneytisins á stjórnsýslu ferðamála og starfsskilyrðum aðila í ferðaþjónustu. Frumvarpið er fyrsta skref í þeirri yfirferð og því lagðar til afmarkaðar breytingar að svo stöddu. Áfram verður unnið að endurskoðun málaflokksins í ljósi mikils fjölda ferðamanna og vaxandi mikilvægi málaflokksins í atvinnulífinu. Frekari breytingar eru því á döfinni á næstunni sem fela m.a. í sér innleiðingu á nýrri tilskipun um pakkaferðir og samtengda ferðatilhögun.

Frestur til að skila umsögnum um frumvarpsdrögin eru til og með 25. maí nk.

Umsagnir óskast sendar á netfangið postur@anr.is eða í bréfpósti: Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, Skúlagötu 4, 101 Reykjavík.