Fara í efni

Opið fyrir umsóknir um styrki frá NATA

Nú er opið fyrir umsóknir um styrki frá NATA, samstarfssamningi Íslands, Færeyja og Grænlands á sviði ferðamála. Umsóknafrestur rennur út á miðnætti 30. ágúst. Sótt er um á vef NATA á rafrænum eyðublöðum sem þar eru.

Styrkir til tvenns konar verkefna

Í samræmi við það sem samningur landanna kveður á um er hægt að sækja um styrki til tvennskonar verkefna:

  • Þróunar- og markaðsverkefna í ferðaþjónustu
  • Ferðastyrki, t.d. vegna skólahópa, íþróttahópa eða menningarverkefna

Stjórn NATA mun árið 2021 líta sérstaklega til umsókna þar sem áhersla er á endurræsingu ferðaþjónustunnar eftir Covid-19, sjálfbærni og stafræna væðingu í ferðaþjónustu.

Styrkir til verkefna í ferðaþjónustu

Allir sem starfa að eflingu ferðaþjónustu í samstarfi landanna þriggja geta sótt um styrk að hámarki 100.000 danskar krónur, eða að hámarki 50% þeirra kostnaðarliða sem styrktir eru. Skulu umsóknir fela í sér samstarf milli einstaklinga, stofnana eða fyrirtækja í tveimur af löndunum þremur hið minnsta. 

Sækja má um aðstoð á eftirfarandi sviðum ferðaþjónustu.

  • Til nýsköpunar- og vöruþróunarverkefna
  • Til sameiginlegra markaðssetningarverkefna
  • Til þekkingarheimsókna og miðlunar gagnkvæmrar reynslu milli ferðaþjónustuaðila
  • Til gæða- og umhverfismála innan ferðaþjónustunnar

Styrkir vegna kynnis- og námsferða

Um er að ræða ferðastyrki til þeirra sem vinna að samstarfsverkefnum sem varða tvö af löndunum þremur hið minnsta. Hámarksstyrkur á hvern einstakling er 1.000 danskar krónur vegna ferða milli Íslands og Grænlands annars vegar og Íslands og Færeyja hins vegar. Ekki eru veittir styrkir vegna gistingar og uppihalds.

Sækja má um styrk til kynnis- og námsferða eftirtaldra:

  • Skóla
  • Íþróttahópa
  • Tónlistarhópa
  • Annars menningarsamstarfs

Hvar er sótt um?

Allar umsóknir þurfa að berast með rafrænum hætti á þar til gerðum umsóknarblöðum sem finna má á vef NATA. Vefurinn og umsóknarformin eru bæði á dönsku og ensku.

Skilafrestur

Lokafrestur til að skila umsókn er á miðnætti (GMT) 30. ágúst 2021. Umsóknir eða fylgigögn sem berast eftir þann tíma verða ekki tekin gild. Niðurstaða stjórnar NATA um úthlutun mun liggja fyrir 15. október 2021. Athugið að verkefni með áætluð verklok fyrir 15. október eru ekki styrkhæf.

Næsti umsóknarfrestur 

Um er að ræða seinni úthlutun af tveimur á árinu 2021. Áætlað er að umsóknarfrestur vegna fyrri úthlutunar 2022 verði í janúar/febrúar 2022 en það verður auglýst sérstaklega síðar.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar gefur starfsmaður NATA, Erla Weihe Johannesen – nata@vinnuframi.fo