Fara í efni

Nýtt vísindatímarit - Ferðamál á norðurslóðum

Nýju vísindatímariti var hleypt af stokkunum við hátíðlega athöfn í Hannesarholti þann 7. desember síðastliðinn að viðstöddum góðum gestum. Tímaritið sem ber heitið Ferðamál á norðurslóðum verður gefið út af Rannsóknamiðstöð ferðamála (RMF) í samstarfi við Ferðamálastofu, Háskólann á Akureyri, Háskólann á Hólum og Háskóla Íslands.

 

Vettvangur fyrir þverfræðilega umfjöllun

Tímaritinu er ætlað að vera vandaður vettvangur fyrir þverfræðilega umfjöllun um ferðamál, ferðamennsku og ferðaþjónustu á norðurslóðum.

 

Fjölbreytt efnistök

Ásamt ritrýndum greinum mun tímaritið einnig birta óritrýnt efni s.s. rannsóknarpistla, samantektir frá ráðstefnum, bókadóma, viðtöl, o.fl. sem varðar ferðaþjónustu og ferðamál á norðurslóðum.

 

Greinar birtast jafn óðum

Tímaritið er opið öllum og munu greinar birtast jafnóðum og þær hafa verið samþykktar. Vefslóð tímaritsins er http://arctictourism.is

 


Guðrún Þóra Gunnarsdóttir, forstöðukona Rannsóknamiðstöðvar ferðamála.


Skarphéðinn Berg Steinarsson ferðamálastjóri opnaði vefsíðu tímaritsins og ræddi við rektora háskólanna þriggja um miðlun rannsókna, mikilvægi samstarfs og samtals háskólasamfélags, atvinnugreinarinnar og hins opinbera.


Sérstakir gestir á stofndegi tímaritsins voru hr. Ólafur Ragnar Grímsson, formaður Hringborðs Norðurslóða og heiðursdoktor Háskólans á Akureyri og dr. John Tribe, prófessor emeritus við Háskólann í Surrey og fyrrverandi ritstjóri tímaritsins Annals of Tourism Research. Með Ólafi Ragnari fremst á myndinni eru ferðamálastjóri og rektorar háskólanna þriggja sem að tímaritinu standa.

Fleiri myndir eru á vef Rannsóknamiðstöðvar ferðamála og Facebook  síðu.
Ljósmyndir/Kristinn Ingvarsson