Fara í efni

Nýtt starfsfólk Ferðamálastofu

Florence og Rannveig
Florence og Rannveig

Tveir nýir starfsmenn hófu nýverið störf hjá Ferðamálastofu. Rannveig Guðmundsdóttir hefur tekið við sem verkefnisstjóri á skrifstofu Ferðamálastofu á Akureyri í barnsburðarleyfi Elínar Ingvarsdóttur og á skrifstofu Ferðamálastofu í Þýskalandi hefur Florence Favier komið til starfa og leysir af Karine Delti-Beck sem einnig er á leið í fæðingarorlof.

Rannveig Guðmundsdóttir er ferðamálafræðingur frá Háskóla íslands og starfaði  áður hjá Þekkingarsetri Þingeyinga á Húsavík.

Florence er frönsk að uppruna. Hún mun einkum sá um samskipti við Frakkland, Ítalíu og Spán, auk Belgíu.

Florece Favier (t.v.) og Rannveig Guðmundsdóttir