Fara í efni

Nýtt landnám, sögutengd ferðaþjónusta

Sögumálþing
Sögumálþing

Málþing með yfirskriftinni "Nýtt landnám, sögutengd ferðaþjónusta" verður haldið í Reykjanesbæ, föstudaginn 8. apríl 2005. Málþinginu er ætlað að varpa ljósi á þá miklu grósku sem einkennir sögutengda ferðaþjónustu á Íslandi.

Sjálft málþingið er haldið í Duushúsum og hefst kl. 15 en áður en það hefst, eða kl. 14:00, verður kynning á eftirbáti sem Gunnar Marel Eggertsson hefur smíðað í húsnæði Íslendings (Seylubraut 1, við Reykjanesbraut).

Málþinginu er sem fyrr segir ætlað að varpa ljósi á þá miklu grósku sem einkennir sögutengda ferðaþjónustu á Íslandi. Einkum verður fjallað um ferðaþjónustu er byggir á Íslendingasögunum og tímabilinu fram til 1300. Málþingið er haldið í samvinnu Reykjanesbæjar og Evrópuverkefnisins Destination Viking Sagalands. Sex íslenskir þátttakendur hafa unnið að því verkefni með samstarfsaðilum frá Færeyjum, Noregi, Svíþjóð, Shetlandseyjum, Orkneyjum, Grænlandi og Kanada. Verkefnið sem er styrkt af Norðurslóðaaáætlun Evrópusambandisins, Vestnorræna sjóðnum o.fl. miðar meðal annars að því að gera Íslendingasögurnar sýnilegri ferðamönnum. Byggðastofnun er í forsvari fyrir verkefnið en verkefnisstjóri er Rögnvaldur Guðmundsson. Mun hann kynna verkefnið í heild, auk þess sem þrír af íslensku aðilunum í verkefninu kynna staðbundin verkefni: Víkingaskipið Íslending, Eiríksstaði í Dölum og verkefni um Þjórsárdal. Þá verður miðaldaverkefnið um Gásir við Eyjafjörð kynnt, Landnámssetur í Borgarnesi, Sögumiðstöð og sagnamennska á Grundarfirði og Landnámsskálinn í Austurstræti. Andri Snær Magnason, rithöfundur slær botninnn í málþingið með hugleiðingum um Ísland og sögutengda ferðaþjónustu. Aðgangur að málþinginu er ókeypis og kaffiveitingar í boði Reykjanesbæjar. Allir fyrirlestrar verða á íslensku. Fundarstjóri: Kristján Pálsson, formaður Ferðamálasamtaka Suðurnesja.

Nánari upplýsingar veita:
Rögnvaldur Guðmundsson, s. 525 4081 gsm. 693 2915 rognv@hi.is
Sigrún Ásta Jónsdóttir, s. 421-6700, gsm. 865-6160 sigrun.a.jonsdottir@reykjanesbaer.is
Gunnar Marel Eggertsson, gsm. 894 2874 vikingship@simnet.is