Fara í efni

Nýtt ferðamálaráð skipað til fjögurra ára

KlettarvidVatn
KlettarvidVatn

Samgönguráðherra hefur í samræmi við ný lög um skipan ferðamál, sem gildi tóku um áramót, skipað nýtt ferðamálaráð til fjögurra ára. Hlutverk ráðsins er eins og fram hefur komið verulega breytt frá því sem áður var.

Einar Oddur Kristjánsson formaður
Í ferðamálaráði eiga sæti tíu fulltrúar. Formaður ferðamálaráðs er Einar Oddur Kristjánsson, alþingismaður og varaformaður er Dagný Jónsdóttir, alþingismaður.
Aðrir fulltrúar ferðamálaráðs, tilnefndir af Samtökum ferðaþjónustunnar eru: Gunnar Már Sigurfinnsson, farmkvæmdastjóri hjá Icelandair, Lára Pétursdóttir, framkvæmdastjóri Congress Reykjavík og Sævar Skaptason, framkvæmdastjóri Ferðaþjónustu bænda. Þá eiga sæti í ferðamálaráði Gunnar Sigurðsson, bæjarfulltrúi, Akranesi og Dagur B. Eggertsson, borgarfulltrúa, báðir tilnefndir af Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Ferðamálasamtök Íslands tilnefndu Pétur Rafnsson, formann Ferðamálasamtaka Íslands og Dóru Magnúsdóttur, markaðsstjóra ferðamála Höfuðborgarstofu. Þá tilnefndi Útflutningsráð Jón Ásbergsson framkvæmdastjóra.

Hlutverk ferðamálaráðs
Hlutverk ferðamálaráðs er skilgreint í 6. gr. laga nr. 73/2005 um skipan ferðamála. Þar kemur m.a. fram að hlutverk þess sé að.

  • Gera árlega eða oftar, tillögur til ráðherra um markaðs- og kynningarmál ferðaþjónustunnar
  • Vera ráðgefandi aðili fyrir ráðherra um áætlanir í ferðamálum.
  • Veita umsagnir um breytingar á lögum og reglum er varða ferðamál og annað er ráðherra felur ráðinu eða ráðið telur ástæðu til að taka upp í þágu ferðaþjónustunnar.

Skipunartími ferðamálaráðs er fjögur ár en skipunartími formanns og varaformanns er þó takmarkaður við embættistíma ráðherra. Ferðamálastjóri og fulltrúi ráðuneytisins sitja fundi ráðsins með málfrelsi og tillögurétt. Ingilín Kristmannsdóttir, viðskiptafræðingur í samgönguráðuneytinu, er ritari ferðamálaráðs.