Fara í efni

Nýtingaráætlun fyrir strandsvæði við Vestfirði

Vestfirðir
Vestfirðir

Fyrsti fundur í fundarröð um nýtingaráætlun fyrir strandsvæði við Vestfirði verður haldinn á veitingarstaðnum Malarkaffi á Drangsnesi, fimmtudaginn 19. nóvember n.k. kl 20.00.  Val fundarstaðar er ekki tilviljun. Þar var hrint af stað verkefni, hinu fyrsta sinnar tegundar á Íslandi, þar sem sjónum er beint að nýtingu strandsvæðisins í heilum landshluta og því er viðeigandi að fyrsti fundur slíku tagi sé haldinn  á fjörukambi í  mynni Steingrímsfjarðar.

Fundir og svæðaafmörkun þeirra er annars sem hér segir;

-     Strandasýsla,  19. nóvember kl 20.00. veitingarstaðurinn Malarkaffi, Drangsnesi.

-     Reykhólahreppur, 20. nóvember kl 10.00. Íþróttahúsið Reykhólum, Reykhólum

-     Vestur Barðastrandasýsla , 20.  nóvember kl 17.00. Skor þróunarsetur, Patreksfirði

-     Ísafjarðarsýsla,  25. nóvember kl 20.00.  Þróunarsetur Vestfjarða, Árnagötu, Ísafirði

Óskað eftir samstarfi við sveitarfélögin um kynningu fundarins, með því að birta efni hans á heimasíðum sveitarfélaganna og kynna efni hans fyrir sveitarstjórnarfulltúum og eftir atvikum hafnarnefnd og atvinnumálanefnd.  Fundirnir verða einnig kynntir í fjölmiðlum.

Hér er neðan tengill inn á upplýsingar um aðdraganda og innihald verkefnisins. Nánari upplýsingar veita Aðalsteinn Óskarsson, framkvæmdastjóri Fjórðungssambands Vestfirðinga (adalsteinn@fjordungssamband.is) og Gunnar Páll Eydal Teiknistofunni Eik (gunnar@teiknistofan.is).

Sjá frekari upplýsingar á: http://www.vestfirskferdamal.is/skraarsafn/flokkur/21/