Fara í efni

Nýr vefur og nýtt merki Akureyrarstofu

Visitakureyri
Visitakureyri

Um helgina kynnti Akureyrarstofa nýjan ferða- og upplýsingavef fyrir Akureyri, www.visitakureyri.is. Vefurinn er á íslensku og ensku og þar er að finna allar helstu upplýsingar fyrir þá sem ferðast til bæjarins. Má þar nefna hótel og gististaði, veitingastaði, afþreyingu og samgöngur.

Við sama tækifæri var merki Akureyrarstofu kynnt en það er hannað af Þórhalli Kristjánssyni. Merkið er bókstafurinn A sem er myndaður  úr nútíma kassalaga formi annars vegar og úr gamaldags flúri hins vegar sem fengið er úr stafnskrauti Menntaskólans á Akureyri.

Skoða visitakureyri.is