Fara í efni

Nýr forstöðumaður hefur störf í Frankfurt

Davíð Jóhannsson
Davíð Jóhannsson

Nýr forstöðumaður skrifstofu Ferðamálastofu í Frankfurt í Þýskalandi, Davíð Jóhannsson, hóf störf í dag. Davíð, sem er 41 árs gamall rekstrarhagfræðingur, býr að mikilli reynslu í ferðaþjónustu og starfaði síðast sem framkvæmdastjóri ITD Island Tours í Frankfurt.

Starfssvið skrifstofu Ferðamálastofu í Frankfurt nær yfir meginland Evrópu auk þess að frá áramótum hefur skrifstofan yfirumsjón með markaðsverkefninu Iceland Naturally í Evrópu, en það verkefni nær einnig yfir Bretland. Fráfarandi forstöðumaður er Haukur Birgisson sem verið hefur forstöðumaður skrifstofunnar síðastliðin. fimm ár. Haukur mun starfa við hlið Davíðs til 1. apríl. Fjórir starfsmenn eru á skrifstofu Ferðamálastofu í Frankfurt.

Mynd:
Davíð Jóhannsson, forstöðumaður skrifstofu Ferðamálastofu í Frankfurt; Haukur Birgisson, fráfarandi forstöðumaður og Ársæll Harðarson, forstöðumaður markaðssviðs Ferðamálastofu.