Fara í efni

Ný fjarnámskeið um VAKANN

Ný fjarnámskeið um VAKANN

Þriðjudaginn 19. mars og miðvikudaginn 20. mars verða enn á ný haldin fjarnámskeið um gerð öryggisáætlana og innleiðingu í VAKANN. Einnig verður í fyrsta sinn boðið upp á nýtt námskeið um umhverfiskerfi VAKANS.

Tímasetningar verða sem hér segir:

Þriðjudagur 19. mars:
Umhverfiskerfið kl. 10:00

Miðvikudagur 20. mars:
Öryggisáætlanir kl. 13:00
Innleiðing kl. 15:00

Skráning er til kl. 16:00 mánudaginn 18. mars

Við hvetjum alla ferðaþjónustuaðila til að taka þátt og bendum á að þátttaka kostar ekki neitt.

Nýsköpunarmiðstöð Íslands stendur fyrir námskeiðunum í samstarfi við VAKANN. Fyrirkomulagið er með þeim hætti að þátttakendur skrá sig á netfangið erla.sig@nmi.is. Gefa skal upp nafn, netfang, heiti fyrirtækis og símanúmer. Mikilvægt er að fólk taki fram á hvaða námskeið það er að skrá sig. Þátttakendur fá senda til baka slóð í tölvupósti sem þeir nota til að skrá sig inn á fundina. Fræðslan er hugsuð jafnt fyrir þá sem þegar hafa sótt um þátttöku í VAKANUM og eru að huga að innleiðingu og þá sem hyggja á umsókn. Lágmarksfjöldi til að námskeið verði haldið er 5 manns, hámarks fjöldi þátttakenda á hverjum fundi eru 15 manns en bætt verður við námskeiðum eftir þörfum.

Nánari upplýsingar

Allar nánari upplýsingar veitir Erla Sigurðardóttir, verkefnisstjóri hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands, erla.sig@nmi, sími 522 9491. Fólki er velkomið að hafa samband við Erlu vegna aðstoðar við aðra þætti í VAKANUM og eins ef umræddir tímar henta ekki viðkomandi og verður þá unnið í að setja upp fleiri námskeið.