Fara í efni

Ný ferðatilskipun Evrópusambandsins tryggir aukin réttindi ferðamanna - Kynningarfundur 15. júní

Laufáshnjúkur og Eyjafjörður

Fimmtudaginn 15. júní 2017 verður haldinn kynningarfundur um nýja ferðatilskipun Evrópusambandsins sem mun koma til framkvæmda 1. júlí 2018. Starfshópur sem unnið hefur að undirbúningi málsins vill tryggja samráð við hagsmunaaðila og boðar í því skyni til fundar þar sem helstu breytingar verða kynntar og leitast verður við að fá fram ábendingar og athugasemdir sem nýst geta við áframhaldandi vinnu. Á fundinum munu fulltrúar Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins, Ferðamálastofu og Neytendastofu kynna helstu breytingar.

Fundurinn verður haldinn fimmtudaginn 15. júní kl. 10–12 í fundarsal Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins 1. hæð, Skúlagötu 4. Honum verður einnig varpað út beint á netinu, sjá slóð að neðan.

Slóð fyrir útsendingu á netinu:
https://global.gotomeeting.com/join/137579317

Breyting á löggjöf um pakkaferðir (alferðir)

Ný tilskipun Evrópusambandsins um pakkaferðir og samtengda ferðatilhögun hefur verið sett og mun koma til framkvæmda 1. júlí 2018. Starfshópur á vegum atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins vinnur að breytingum á lögum um alferðir nr. 80/1994, og lögum um skipan ferðamála, nr. 73/2005, vegna innleiðingarinnar.

Megintilgangur tilskipunarinnar er að tryggja hag þeirra sem kaupa pakkaferðir eða ferðir sem settar eru saman fyrir tilstuðlan seljanda.

Samtengd ferðatilhögun

Netið hefur gjörbylt möguleikum ferðamanna á að setja saman eigin ferðir. Þær ferðir falla hins vegar utan við þá vernd sem gildandi löggjöf veitir ferðamönnum. Með tilskipuninni er gildissvið gildandi löggjafar útvíkkað annars vegar með útvíkkun hugtaksins pakkaferð og hins vegar með því að nú mun hún einnig taka til samsetningar ferða á netinu sem kallast „samtengd ferðatilhögun“ (Linked Travel Arrangements - LTA). Aðrar meginbreytingar fela í sér aukna upplýsingaskyldu til ferðamanna og gagnkvæma viðurkenningu allra EES ríkja á tryggingakerfum hvers annars.

Nauðsynlegt er að hagsmunaaðilar séu vel upplýstir um tilskipunina og væntanlegar breytingar.

Nánar um helstu breytingar

Pakkaferð

Pakkaferð telst eftir sem áður vera samsetning a.m.k. tveggja ferðatengdra þjónustuþátta sem seljandi býður ferðamanni. Samkvæmt tilskipuninni er það einnig pakkaferð þegar gerður er samningur við hvern ferðaþjónustuveitanda ef þjónustan er:

  • keypt á sama stað og þjónustan hefur verið valin áður en ferðamaður samþykkir að greiða fyrir ferðina,
  • boðin, seld eða greitt fyrir hana á einu heildarverði,
  • boðin eða auglýst undir hugtakinu „pakki“ eða öðru sambærilegu,
  • sett saman eftir að samningur er gerður, þar sem ferðamaður fær að velja milli mismunandi tegunda ferðatengdrar þjónustu eða
  • keypt af mismunandi seljendum með hjálp tengdra bókunarferla á Netinu þegar seljandinn, sem fyrsti samningur er gerður við, sendir nafn ferðamannsins, greiðsluskilmála og netfang hans til annars eða annarra seljenda og samningur er gerður við þá eigi síðar en 24 klst. eftir að bókun fyrstu ferðatengdu þjónustunnar er staðfest.

Samtengd ferðatilhögun

  • Samtengd ferðatilhögun er ferð þar sem ferðamaður kaupir a.m.k. tvenns konar ferðatengda þjónustu, t.d. flug og gistingu, af tveimur mismunandi ferðaþjónustuveitendum.
  • Hafi seljandi fyrstu ferðatengdu þjónustunnar gert ferðamanni auðveldara um vik að velja sérstaklega og greiða fyrir hvern hinna síðari þjónustuþátta fyrir sig eða boðið með beinni markaðssetningu fram a.m.k. eina viðbótarþjónustu frá öðrum seljanda er um samtengda ferðatilhögun að ræða.
  • Samtengd ferðatilhögun nær yfir talsvert fleiri tilvik bókana heldur en bókanir sem falla undir pakkaferðir. Ekki er gerð krafa um að greiðsluupplýsingar og aðrar viðeigandi upplýsingar um kaupandann hafi verið sendar á milli þjónustuaðilanna.

Aukin upplýsingaskylda

Víðtækari upplýsingaskylda mun hvíla á seljanda gagnvart kaupanda áður en samningur um pakkaferð er gerður og lýtur að því í hverju réttur kaupanda er fólginn. Upplýsingaskyldu er ætlað að auka gagnsæi og réttaröryggi frá sjónarhóli ferðamannsins.

Skylt er samkvæmt tilskipuninni að upplýsa kaupanda um:

  • hvort um pakkaferð eða samtengda ferðatilhögun sé að ræða,
  • hver sé ábyrgur fyrir framkvæmd ferðarinnar,
  • að trygging sé til staðar vegna endurgreiðslu og heimferðar vegna hugsanlegrar ógjaldfærni, gjaldþrots eða rekstrarstöðvunar og hvert eigi að snúa sér við slíkar aðstæður,
  • hvar hægt sé að nálgast nauðsynlegar upplýsingar um ábyrgðaraðilann,
  • um framsal ferðar til annarra,
  • verð ferðarinnar og hugsanlegar verðbreytingar,
  • riftun samnings með og án þóknunar,
  • til hvaða ráðstafana verði gripið ef ekki er hægt að framkvæma ferðina eins og ætlast er til og
  • hvaða aðstoð verði veitt ef ferðamaðurinn lendir í erfiðleikum.

Tryggingavernd

Með tilskipuninni er tryggingarskyldan útvíkkuð frá því sem nú er, annars vegar með breyttri skilgreiningu á pakkaferð og hins vegar með tilkomu samtengdrar ferðatilhögunar. Þá felur tilskipunin það í sér að reynt getur á trygginguna í tilfelli ógjaldfærni en einskorðast ekki við gjaldþrot eins og áður var. Tryggt skal að ferðamaður fái fulla endurgreiðslu þess fjár sem hann hefur greitt vegna ferðar sem enn er ófarin og til flutnings heim úr ferð vegna ógjaldfærni eða rekstrarstöðvunar.

Nýmæli er að aðildarríkin skulu viðurkenna tryggingarkerfi hvers annars og skulu þau vinna saman á sviði stjórnsýslu og eftirlits með tryggingarskyldum aðilum aðildarríkjanna. Einnig er aðildarríkjunum veitt svigrúm til þess að gera skipuleggjendum utan EES-svæðisins sem selja og bjóða til sölu pakkaferðir í aðildarríkjunum eða beina starfsemi sinni að þeim, skylt að leggja fram ábyrgðir.

Aðrar breytingar

Eftir sem áður verður seljanda eingöngu heimilt að gera breytingar á verði ferðar ef breytingarnar stafa af hækkun eldsneytisgjalds, skattabreytingum eða gengisbreytingum og að fram hafi komið í samningi að til slíkra breytinga geti komið. Óheimilt er að gera verðbreytingar síðustu 20 daga fyrir brottför. Nýmæli er að ferðamaður skal með sama hætti eiga rétt til lækkunar á verði ef verðlækkanir eiga sér stað á umræddum kostnaðarliðum. Þá er nú sérstaklega kveðið á um það að ef verðhækkanir fara fram yfir 8% hækkun á heildarverði pakkaferðar/samtengdrar ferðatilhögunar skal ferðamaður eiga rétt á að rifta samningi sér að kostnaðarlausu og fá fulla endurgreiðslu.

Frekari upplýsingar um innleiðingarvinnuna veitir Steinunn Valdís Óskarsdóttir, sérfræðingur á skrifstofu ferðamála. steinunn.valdis.oskarsdottir@anr.is.