Fara í efni

Norrænar vinnustofur í Suður-Evrópu í haust

Íslandsstofa
Íslandsstofa

Líkt og undanfarin ár mun Íslandsstofa, í samstarfi við önnur Norðurlönd, bjóða upp á vinnustofur í þremur borgum á Spáni og Ítalíu.

Á vinnusmiðjurnar verður boðið áhugaverðum viðskiptaaðilum úr sameiginlegum tenglagagnabanka Norðurlandanna svo og aðkeyptum tenglum. Tímasetningin er hagstæð öllum þeim söluaðilum sem vilja kynna nýjungar fyrir komandi ár og stofna til nýrra viðskiptasambanda á þessum mörkuðum.

26. september 2012 í Madríd - ásamt Danmörku, Svíþjóð og Finnlandi
27. september 2012 í Barcelóna - ásamt Danmörku, Svíþjóð og Finnlandi
09. október 2012 í Mílanó - ásamt Danmörku, Svíþjóð og Noregi 

Að jafnaði er gert ráð fyrir 80-100 þátttakendum úr röðum ferðaskipuleggjenda orlofsferða og MICE, auk sérvalinna blaðamanna. Gerð verður handbók um seljendur sem dreift verður til gesta. Seljendur fá handbók með upplýsingum um skráða kaupendur sem verða úr hópi yfir aðila sem boðið verður. Að auki er gert ráð fyrir kynningu um áfangastaðina fyrir kaupendur og kynningu um markaðina fyrir seljendur.

Frestur til að tilkynna þátttöku er 1. júlí 2012.

Nánari upplýsingar og skráning - Vinnustour í Suður-Evrópu