Fara í efni

Norðursigling í VAKANN.

Norðursigling í VAKANN.

Fyrirtækið Norðursigling (North Sailing) var stofnað árið 1995 á Húsavík til rekstar á fyrsta skipi félagsins, Knerrinum, sem bræðurnir Árni og Hörður Sigurbjarnarsynir höfðu bjargað frá eyðileggingu og gert upp til hvalaskoðunar. Síðar bættist Heimir Harðarson, sonur Harðar, í eigendahópinn.

Frá stofnun hefur Norðursigling verið leiðandi í hvalaskoðun á Íslandi og hefur umhverfisvernd og sjálfbærni starfseminnnar verið höfð að leiðarljósi og áhersla verið lögð á einstaka upplifun fyrir hvern gest.

Nú, þegar Norðursigling stefnir inn í tuttugasta starfsárið, gerir fyrirtækið út 7 skip, þar af 3 hefðbundnar skonnortur undir seglum í styttri og lengri ferðum. Farþegafjöldi fer vel yfir 50.000 manns á árinu 2014.
Við hjá VAKANUM bjóðum Norðursiglingu velkomna í hópinn og óskum þeim innilega til hamingju.
Á myndinni er Birna Lind Björnsdóttir sölu og markaðsstjóri Norðursiglingar þegar hún tók við viðurkenningu VAKANS á Vestnorden ferðakaupstefnunni.