Fara í efni

Norðursigling hlaut Umhverfisverðlaun Ferðamálastofu 2015

Afhending Umhverfisverðlauna
Guðbjartur Ellert Jónsson, framkvæmdastjóri Norðursiglingar, tók á móti verðlaununum. Honum á vinstri hönd er Ragnheiður Elín Árnadóttir, ráðherra ferðamála en á hægri hönd Ólöf Ýrr Atladóttir ferðamálastjóri og Örn Þór Halldórsson, umhverfisstjóri Ferðamálastofu.

Norðursigling á Húsavík er handhafi Umhverfisverðlauna Ferðamálastofu 2015. Ráðherra ferðamála, Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar og viðskiptaráðherra, afhenti verðlaunin á Ferðamálaþingi í Hofi á Akureyri í dag. Verðlaunin hafa verið veitt árlega frá árinu 1995 og er þetta því 21. árið í röð sem verðlaunin eru veitt. 

Ábyrg afstaða skiptir máli

„Óvíða í atvinnulífinu eru umhverfismálin í meiri forgrunni en í ferðaþjónustunni, og öll vitum við að náttúran okkar er helsta auðlind atvinnugreinarinnar. Ábyrg afstaða fyrirtækja til umhverfismála skiptir því miklu máli, en mikil vakning og umræða hefur einmitt átt sér stað innan ferðaþjónustunnar um nauðsyn þess að umgangast þetta fjöregg okkar af meiri sjálfbærni, virðingu, og ekki síst nærgætni, því allar okkar athafnir hafa árif á umhverfið með einum og öðrum hætti,“ sagði Ragnheiður Elín meðal anars í ávarpi sínu við afhendinguna.

Eftirtektarverður árangur

Norðursigling var að þessu sinni tilnefn vegna markmiða sinna og árangurs í að efla sjálfbæra ferðaþjónustu, en fyrirtækið hefur náð margvíslegum og eftirtektarverðum árangri í þeim efnum. Sérstaklega er horft til þess að undanfarið hefur fyrirtækið, ásamt teymi íslenskra og norrænna samstarfsaðila, þróað nýtt rafkerfi, þar sem vindorkan er notuð til þess að hlaða rafgeyma skipsins Opal.

Einstakt verkefni á heimsvísu

Með þessari nýtingu á grænni orku er Norðursigling orðin fremst meðal jafningja í uppbyggingu sjálfbærrar hvalaskoðunar á Íslandi og hefur sannarlega látið verkin tala í þeim efnum og skapað sér sess meðal helstu frumkvöðla í vistvænum siglingum. Verkefninu, sem er einstakt á heimsvísu, er ætlað að nýtast öllum skipaflota fyrirtækisins, en fyrirtækið hefur skapað sér mikla sérstöðu með áherslu sinni á nýtingu og verndun gamalla báta, sem er til hreinnar fyrirmyndar, enda um mikil menningarverðmæti að ræða.

Virðing fyrir auðlindinni

Fyrirtækið er einnig meðvitað um álagsþol auðlindarinnar sem það byggir afkomu sína á og leggur m.a. mikla áhersla á að trufla ekki hvali í ferðum sínum og fylgir ákveðnu verklagi í þeim efnum, m.a. með notkun á hljóðlátu drifkerfi. Virðing fyrir auðlindinni endurspeglast með skýrum hætti á heimasíðu fyrirtækisins og einnig er lögð áhersla á að fræða starfsmenn og viðskiptavini um umhverfismál.

Er í Vakanum

Norðursigling er með bronsmerki í umhverfiskerfi Vakans og er eini tilnefndi aðilinn sem náð hefur þeim árangri. Í máli ráðherrans kom fram að verulegu máli skipti, að íslensk ferðaþjónusta sammælist um að vinna sífellt að auknum gæðum og umhverfisvitund í sínum ranni. „Uppbygging VAKANS, gæða og umhverfiskerfi ferðaþjónustunnar, hefur einmitt þetta að markmiði, en þar tók atvinnugreinin sjálf höndum saman við lykilaðila í stoðkerfi atvinnulífsins til að vinna að þessum markmiðum. Það er von mín að ferðaþjónustuaðilar nýti sér vel þau tækifæri sem VAKINN hefur upp á að bjóða, þannig að saman getum við gert frábæra atvinnugrein enn betri,“ sagði Ragnheiður Elín.

Þess bera að geta að fyrirtækið hefur áður fengið umhverfisverðlaun Ferðamálaráðs, en þau hlaut fyrirtækið árið 1996, þá nýstofnað, fyrir Knörrinn, fyrsta bát Norðursiglingar.

- - -
Verðlaunagripurinn er skúlptúr eftir Aðalstein Svan Sigfússon, myndlistarmann. Hugmynd listamannsins að baki gripnum er að hann sé ör sem vísi upp á við til glæstrar framtíðar. Gripurinn er unninn úr íslensku gabbrói og lerki. Óunni hluti píramídans stendur fyrir ósnortna náttúru sem við viljum varðveita sem lengst.