Náttúran dregur að sem fyrr en uppfyllir Íslandsferðin væntingar? - Samantekt úr landamærakönnun 2025
12.05.2026
Út er komin ný samantekt úr landamærakönnun Ferðamálastofu meðal erlendra ferðamanna fyrir árið 2025. Í henni eru niðurstöður settar fram með myndrænum hætti og í töflum, auk þess sem hægt er að nálgast Excel-skjöl sem meðal annars má nýta til frekari úrvinnslu gagna. Hér að neðan er gerð grein fyrir nokkrum helstu niðurstöðum samantektarinnar.
