Fara í efni

NATA auglýsir eftir styrkumsóknum og opnar nýjan vef

NATA logo
NATA logo

Auglýst hefur verið eftir styrkumsóknum frá NATA, samstarfssamningi Íslands, Færeyja og Grænlands á sviði ferðamála. Jafnframt hefur verið opnaður nýr vefur fyrir NATA og fara allar umsóknir þar í gegn á rafrænum eyðublöðum.

Ný vefsíða
Á nýjum vef NATA á slóðinni www.nata.is er að finna allar helstu upplýsingar um samtökin, bæði á ensku og dönsku. Ítarlegar upplýsingar eru um styrkjamöguleika og meðal nýjunga eru rafræn umsóknareyðublöð þar sem allar umsóknir fara nú í gegn um, sem fyrr segir. Þá má einnig nefna nýja þjónustu þar sem fyrirtæki geta leitað eftir samstarfsaðilum í hinum löndunum, öðru eða báðum eftir atvikum.

Styrkir til tvenns konar verkefna
Í samræmi við það sem samningur landanna kveður á um er hægt að sækja um styrki til tvennskonar verkefna. Annars vegar verkefna í ferðaþjónustu og hins vegar ferðastyrki, t.d. vegna skólahópa, íþróttahópa eða menningarverkefna.

Styrkir til verkefna í ferðaþjónustu
Allir sem starfa að eflingu ferðaþjónustu á milli landanna þriggja geta sótt um styrk að hámarki 100.000 danskar krónur, eða að hámarki 50% þeirra kostnaðarliða sem styrktir eru. Skulu umsóknir fela í sér samstarf milli einstaklinga, stofnana eða fyrirtækja í tveimur af löndunum þremur hið minnsta. Ekki eru veittir styrkir vegna launakostnaðar, ráðgjafar, útgáfu efnis eða vefsíðugerðar.

Sækja má um aðstoð á eftirfarandi sviðum ferðaþjónustu.

  • Til markaðssetningar.
  • Til nýsköpunar- og – vöruþróunar.
  • Til að mynda tengslanet og miðla þekkingu.
  • Til gæða- og umhverfismála innan ferðaþjónustunnar.

Við mat á umsóknum verður tekið tillit til eftirfarandi þátta:

  • Verkefnishugmyndar og gæða umsóknarinnar. Ófullgerðar umsóknir verða ekki teknar til greina.
  • Nýnæmis og nýsköpunargildis verkefnisins
  • Markaðstengingar
  • Kostnaðaráætlunar og annarrar fjármögnunar
  • Samfélagslegs gildis

Styrkir vegna kynnis- og námsferða
Eitt af markmiðum samstarfssamnings um ferðamál á milli Íslands, Grænlands og Færeyja er að auka samskipti og fjölga heimsóknum á milli landanna þriggja. Hér með eru auglýstir ferðastyrkir til þeirra sem vinna að samstarfsverkefnum sem varða tvö af löndunum þremur hið minnsta. Styrkjunum er einvörðungu ætlað að standa straum af ferðakostnaði, ekki gistingu eða uppihaldi. Hámarksstyrkur á hvern einstakling er  1.000 danskar krónur vegna ferðalaga milli Íslands og Grænlands annars vegar og Íslands og Færeyja hins vegar.

Sækja má um styrk til kynnis- og námsferða eftirtaldra:

  • Skóla
  • Íþróttahópa
  • Tónlistarhópa
  • Annars menningarsamstarfs

Við mat á umsóknum verður tekið tillit til eftirfarandi atriða:

  • Verkefnishugmynd
  • Gæði umsóknar. Ófullgerðar umsóknir verða ekki teknar til greina.
  • Gagnkvæmni og tengslamyndun
  • Kostnaðaráætlun, fjármögnun

Hvar er sótt um?
Allar umsóknir þurfa að berast með rafrænum hætti á þar til gerðum umsóknarblöðum sem finna má á vef NATA. Vefurinn og umsóknarformin eru bæði á dönsku og ensku.

Skilafrestur
Lokafrestur til að skila umsókn er 10. september 2012. Umsóknir eða fylgigögn sem berast eftir þann tíma verða ekki tekin gild. Niðurstaða stjórnar NATA um úthlutun mun liggja fyrir um miðjan október.

Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar gefur starfsmaður NATA, Mette K. Kibsgaard, sími 00 298 30 9914 eða í gegnum netfangið mette@industry.fo