Fara í efni

NATA auglýsir eftir styrkumsóknum

NATA logo
NATA logo

Nú hefur verið auglýst eftir umsóknum um styrki frá NATA - Samstarf á sviði ferðamála milli Grænlands, Íslands og Færeyja. Allir sem áhuga hafa á bættum samskiptum á sviði ferðamála milli landanna þriggja geta leitað eftir aðstoð við að fjármagna verkefni, hugmyndir, ferðir eða því um líkt.

Umsóknir skulu fela í sér samstarf milli tveggja af löndunum þremur hið minnsta.

Sækja má um aðstoð á eftirfarandi sviðum:

  • Menntun
    Dvöl til að kynna sér aðstæður, faglegar námsferðir, skólaferðalög, menntun á sviði ferðamála, rannsóknir o.s.frv.
  • Þróun ferða
    Siglingar, þemaferðir, stuttar heimsóknir (short break) o.s.frv.
  • Samstarf þjóða í milli
    Menningartengdir viðburðir, skólaferðir, íþróttaferðir, vinabæjartengsl o.s.frv.
  • Markaðssetning og skilgreining ferðamennsku

Leita má eftir stuðningi við verkefni, ferðir eða starfsemi sem fer fram fyrir árslok 2009. Allar umsóknir skulu vera á þar til gerðum eyðublöðum sem nálgast má hér neðar á síðunni. Sem fylgiskjöl með umsókninni skal leggja fram nákvæma útlistun á verkefni, svo og fjárhagsáætlun. Umsóknir skulu vera á dönsku eða ensku og sendast til:

NATA c/o
Ferðamálastofa
Lækjargata 3,
101 Reykjavík

Lokafrestur til að senda umsóknir er til 20. febrúar 2009.

-Hægrismellið á tenglana hér fyrir neðan og veljið "Save Target As" til að vista umsóknareyðublöðin á eigin tölvu.