Fara í efni

NATA auglýsir eftir styrkumsóknum

Norðurljós
Norðurljós

Auglýst hefur verið eftir umsóknum í styrki frá NATA, North Atlantic Tourist Association. Um er að ræða samning Íslands, Færeyja og Grænlands um samstarf landanna þriggja í ferðamálum.

Allir sem áhuga hafa á bættum samskiptum á sviði ferðamála milli landanna þriggja geta leitað eftir aðstoð við að fjármagna verkefni, hugmyndir, ferðir eða því um líkt. Umsóknir skulu fela í sér samstarf milli tveggja af löndunum þremur hið minnsta. 

Sækja má um aðstoð á eftirfarandi sviðum:

Þróun ferða
Siglingar, þemaferðir, stuttar heimsóknir (shortbreak) o.s.frv.

Markaðssetning í ferðaþjónustu og greining sóknartækifæra
Alþjóðleg átaksverkefni á sviði ferðaþjónustu.

Menntun
Faglegar námsferðir, menntun á sviði ferðamála,
dvöl til að kynna sér aðstæður.

Styrkur getur aldrei numið meira en sem nemur 50% af kostnaði, hámarksupphæð styrks eru 100.000 DKK.  Ekki eru veittir styrkir vegna launa- eða ráðgjafakostnaðar.

Allar umsóknir skulu vera á þar til gerðum eyðublöðum. Sem fylgiskjöl með umsókninni skal leggja fram nákvæma útlistun á verkefni, svo og fjárhagsáætlun. Umsóknir skulu vera á dönsku eða
ensku og sendast til:

NATA c/o
Ferðamálastofa
Geirsgata 9,
101 Reykjavík

Lokafrestur til að senda umsóknir er til 4. september 2010

Umsóknareyðublað:

-Hægrismellið á tenglana hér fyrir neðan og veljið "Save Target As" til að vista umsóknareyðublöðin á eigin tölvu.

  • Umsóknareyðublað á ensku (Word)
  • Umdóknareyðublað á dönsku (Word)

    Fyrirspurnir varðandi vinnslu umsóknar sendist til:
    sigrun@icetourist.is

    NATA er samstarfssamningur ferðamálaráðuneyta í Færeyjum, á Grænlandi og á Íslandi. Markmið samningsins er að auka skilvirkni í samstarfi aðila er sinna ferðamálum í Færeyjum, á Grænlandi og á Íslandi með því að styrkja, samhæfa og tryggja framboð samvinnuverkefna aðildarlandanna á þeim sviðum ferðamála þar sem þau eiga einkum sameiginlegra hagsmuna að gæta.