Fara í efni

Námssmiðja um náttúrutengda ferðaþjónustu

Myvatn2
Myvatn2

Dagana 5. og 6. maí verður haldin námssmiðja fyrir hagsmunaðila og áhugafólk um ferðaþjónustu á Norðausturlandi. Námssmiðjan er hluti af stefnumótunarvinnu Atvinnuþróunarfélags Þingeyinga í ferðamálum á svæðinu og að henni koma innlendir og erlendir fræðimenn auk frumkvöðla úr heimabyggð. Dagskráin skiptist í tvö þemu og verður einn dagur helgaður hvoru.

Húsavík
Þann 5. maí á Húsavík, verður fjallað um sjávartengda ferðaþjónustu almennt, og hvalaskoðun tekin sem dæmi um vel heppnaða vöruþróun. Frummælandi verður Dr. Michael Lück, dósent við ferðamálaskóla Aukland University of Technology. Einnig flytja erindi Hreiðar Þór Valtýsson, lektor við Háskólann á Akureyri og Dr.Marianne Helene Rasmussen, sjávarspendýrafræðingur og forstöðumaður Rannsókna- og fræðaseturs Háskóla Íslands á Húsavík. Þátttakendur munu fara í hvalaskoðun og heimsækja Hvalasafnið, þar sem Dr. Edward H. Huijbens, forstöðumaður Ferðamálaseturs Íslands og Dr. John Hull sérfræðingur frá Nýja Sjálandi stýra umræðum.

Mývatnssveit
Daginn eftir, 6.maí, verður haldið í Mývatnssveit og fjallað um náttúrutengda ferðaþjónustu með áherslu á fugla og fuglaskoðun. Frummælandi dagsins verður Carol Pattersson , ferðaþjónusturáðgjafi og leiðbeinandi við Háskólann í Calgary. Þorkell Lindberg Þórarinsson, dýravistfræðingur og forstöðumaður Náttúrustofu Norðausturlands flytur erindi og leiðir hópinn í fuglaskoðun. Fuglasafn Sigurgeirs verður heimsótt og umræður undir stjórn Dr. Edward H. Huijbens og Dr. John Hull fara fram í Vogafjósi.

Áhugasamir hafi samband við Vilborgu Gissurardóttur hjá Atvinnuþróunarfélagi Þingeyinga í síma 464-0413 eða vilborg@atthing.is .

Dagskrá Námssmiðjunnar:

Húsavík, mánudaginn 5. maí 2008 - Sjávartengd ferðaþjónusta

8:30 - Skráning  
9:00 - Setningarávarp  
9:15 - Frummælandi; Micha Lueck, Ph.D við Ferðamálaskóla Aukland Tækniháskólans
10.30 - Kaffihlé 
11.00 - Hreiðar Þór Valtýsson, Lektor við Háskólann á Akureyri 
11.45 - Marianne Helene Rasmussen,  Háskólasetur Húsavíkur 
12:30 - Hádegisverður  
13:30 - Hvalaskoðun  
15:30 - Kaffihlé í Hvalasafninu  
16:00 - Hvalasafnið  
17:00 - Samantekt og umræður  
19:00 - Kvöldverður 

Mývatn, þriðjudaginn 6. maí 2008 - Náttúrutengd ferðaþjónusta

8:00 - Brottför frá Húsavík til Mývatnssveitar  
9:00 - Kynning, Edward H. Huijbens 
9:15 - Frummælandi; Carol Patterson,  Kalgari Management  
10:30 - Kaffihlé  
11:00 - Þorkell Lindberg Þórarinsson, Náttúrustofa Norðausturlands  
11:45 - Fuglaafn Sigurgeirs, Pétur Bjarni Gíslason  
12:30 - Hádegisverður  
13:30 - Fuglaskoðun  
14:30 - Kaffihlé í Vogafjósi  
16:00 - Fuglaskoðun  
17:00 - Samantekt  
18:30 - Fordrykkur og kvöldverður