Fara í efni

Námskeið fyrir starfsfólk upplýsingamiðstöðva haldið á menntabrúnni

Breytingar á stjórn
Breytingar á stjórn "Iceland Naturally"

Ferðamálaráð heldur námskeið fyrir starfsfólk upplýsingamiðstöðva þriðjudaginn 7. júní næstkomandi kl. 12:45-15:15. Í fyrra var bryddað upp á þeirri nýbreytni að halda námskeiðið á menntabrúnni og verður svo einnig nú.

Móttökustaðir verða í símenntunarmiðstöðvunum á Egilsstöðum, Höfn, Selfossi, Reykjavík, Ísafirði, Borgarnesi, Sauðárkróki og Akureyri. Fyrirlesarar á námskeiðinu verða Elías Bj. Gíslason forstöðumaður upplýsinga- og þróunarsviðs Ferðamálaráðs Íslands á Akureyri, Drífa Magnúsdóttir, verkefnastjóri upplýsingamiðstöðvar Höfuðborgarstofu og Erla Björg Guðmundsdóttir rekstrar- og viðskiptafræðingur.

Mikilvægt er að a.m.k. nýtt starfsfólk komi á námskeiðið. Þýðingarmikið er að skapa tengsl á milli stöðva auk þess sem yfirbragð stöðvanna verður líkara innbyrðis ef sem flestir starfsmenn hafa setið námskeið.

Þátttökugjald er 2.900 og skráning fer fram í gegnum netfangið: upplysingar@icetourist.is eða í síma: 464-9990. Áhugasamir eru vinsamlegast beðnir um að skrá sig fyrir 3. júní næstkomandi. Lágmarks fjöldi þátttakenda á hverjum stað er fjórir.

Dagskrá::

12:45 ? 13:00 Skráning þátttakenda og afhending gagna.

13:00 ? 13:10 Af hverju upplýsingamiðstöðvar og fyrir hverja?
   Elías Bj. Gíslason,  forstöðumaður Ferðamálaráði Íslands
        
13:10 ? 13:50 Daglegt starf á upplýsingamiðstöð.
   Drífa Magnúsdóttir,  verkefnastjóri upplýsingamiðstöðvar Höfuðborgarstofu   

13:50 ? 14:00 Kaffi

14:00 ? 15:00 Gæðavíddir þjónustu.
   Erla Björg Guðmundsdóttir, rekstrar- og viðskiptafræðingur
      
15:15   Námskeiðslok 

Þátttaka tilkynnist í síma 464 9990 eða á netfangið: upplysingar@icetourist.is fyrir 3. júní næstkomandi.

Mynd: Frá Neðstakaupstað á Ísafirði
/Ingi Gunnar Jóhannsson.