Fara í efni

Námskeið fyrir starfsfólk upplýsingamiðstöðva haldið á menntabrúnni

Ferðafólk
Ferðafólk

Ferðamálastofa heldur námskeið fyrir starfsfólk upplýsingamiðstöðva þriðjudaginn 5. júní næstkomandi kl. 12:45-15:15. Í fyrra var námskeiðið haldið í Reykjavík en í ár verður námskeiðið á menntabrúnni.

Móttökustaðir verða í símenntunarmiðstöðvunum á Egilsstöðum, Höfn, Selfossi, Reykjanesbæ, Ísafirði, Borgarnesi, Sauðárkróki og Akureyri. Fyrirlesarar á námskeiðinu verða Elías Bj. Gíslason, forstöðumaður upplýsinga- og þróunarsviðs Ferðamálastofu; Claudia Lobindzus,  f.v. starfsmaður upplýsingamiðstöðvarinnar á Akureyri; Elín Svava Ingvarsdóttir, verkefnastjóri Ferðamálastofu og Erla Björg Guðmundsdóttir, rekstrar- og viðskiptafræðingur.

Mikilvægt er að a.m.k. nýtt starfsfólk komi á námskeiðið. Þýðingarmikið er að skapa tengsl á milli stöðva auk þess sem yfirbragð stöðvanna verður líkara innbyrðis ef sem flestir starfsmenn hafa setið námskeið.

Þátttökugjald er 3.900 og skráning fer fram í gegnum netfangið: upplysingar@icetourist.is eða í síma: 464-9990. Áhugasamir eru vinsamlegast beðnir um að skrá sig fyrir 2. júní næstkomandi. Lágmarksfjöldi þátttakenda á hverjum stað er þrír.

 Dagskrá:

12:45 ? 13:00 Skráning þátttakenda og afhending gagna.
13:00 ? 13:20 Þeir koma og hvað með það, fyrir hverja eru upplýsingamiðstöðvar?
  Elías Bj. Gíslason,  forstöðumaður upplýsinga- og þróunarsviðs Ferðamálastofu
13:20 ? 13:50  Daglegt starf á upplýsingamiðstöð.
  Claudia Lobindzus, f.v. starfsmaður upplýsingamiðstöðvarinnar á Akureyri. 
13:50 ? 14:00  Handbók Ferðamálastofu 
   Elín Svava Ingvarsdóttir, verkefnastjóri Ferðamálastofu
14:00 ? 14:10  Kaffi
14:10 ? 15:00 Þjónusta, þjónusta og þjónusta!
   Erla Björg Guðmundsdóttir, rekstrar- og viðskiptafræðingur
15:15 Námskeiðslok 

Þátttaka tilkynnist í síma 464 9990 eða á netfangið: upplysingar@icetourist.is fyrir 2. júní n.k.

Mynd: Frá Neðstakaupstað á Ísafirði
/Ingi Gunnar Jóhannsson.