Fara í efni

Námskeið fyrir starfsfólk upplýsingamiðstöðva

Upplýsingamiðstöð
Upplýsingamiðstöð

Ferðamálastofa og upplýsingamiðstöð ferðamanna í Reykjavík gangast fyrir námskeiði fyrir starfsfólk upplýsingamiðstöðva miðvikudaginn 3. júní næstkomandi.

Allt frá 1993 hefur Ferðamálastofa haldið námskeið fyrir starfsfólk upplýsingamiðstöðva. Námskeiðið hefur verið haldið með mismundi sniði og staðsetningar hafa verið ýmist í Reykjavík, Akureyri, Egilsstöðum eða í gegnum fjarfundarbúnað sem sent hefur verið til allra landshluta. Að þessu sinni verður námskeiðið í Listasafni Reykjavíkur, Hanfarhúsinu og hefst kl. 10.

Ferðakostnaður greiddur
Til að jafna kostnað á milli upplýsingamiðstöðva mun Ferðamálstofa greiða fyrir ferðakostnað þátttakanda sem koma lengra að, annar kostnaður verður greiddur af viðkomandi upplýsingamiðstöð. Gert er ráð fyrir að dagskrá hefjist kl.10:15 og ljúki kl. 16:20 þannig að flestir sem myndu koma og fara með flugi gætu farið fram og til baka samdægurs.

Kynningar frá landshlutum
Ein af nýjungunum þetta árið er að fulltrúar frá hverjum landshluta verða með stutta kynningu á sínu svæði í máli og myndum. Í lok námskeiðsins býðst þeim sem það kjósa að fara í skoðunarferð um höfuðborgarsvæðið og myndi sú ferða standa frá um kl. 16:40 ? 18:45 og svo sameiginlegur kvöldverður.

Skráning
Endilega tilkynnið þátttöku sem fyrst og í síðasta lagi á hádegi 2. júní. Skráning fer fram hér á vefnum.

DAGSKRÁ: 

10:00-10:15 Skráning og afhending gagna.
10:15-10:30 Fyrir hverja eru upplýsingamiðstöðvar?
Elías Bj Gíslason, forstöðumaður Ferðamálastofu
10:30-11:15 Daglegt starf á upplýsingamiðstöð
Drífa Magnúsdóttir, upplýsingamiðstöð Reykjavíkur
11:15-11:35 Handbók og gagnagrunnur Ferðamálastofu
Halldór Arinbjarnarson, vefstjóri Ferðamálastofu
11:35-11:50 ?Have a safe jorney? kynning á bæklingi og myndbandi frá Umferðarstofu
 Sigurður Helgason, verkefnastjóri Umferðarstofu
11:50-12:45  - Hádegisverðarhlé -
12:45-13:05 Má tjalda hvar sem er? Náttúruvermd og þjóðgarðar á Íslandi
Umhverfisstofnun
13:05-13:25 Öryggi ferðamanna á Íslandi.
 Jónas Guðmundsson, Markaðsstofu Vesturlands
13:25-14:15 Sölutækni og góð þjónusta, er hægt að sameina þetta tvennt?
Hansína B. Einarsdóttir, hótelstjóri Hótel Glym
14:15-14:35  - Kaffi / te -
Kynningar frá landshlutum
14:35-14:50  Kynning frá Reykjanesi
14:50-15:05 Kynning frá Vesturlandi
15:05-15:20 Kynning frá Vestfjörðum
15:20-15:35  Kynning frá Norðurlandi
15:35-15:50  Kynning frá Austurlandi
15:50-16:05 Kynning frá Suðurlandi
16:05-16:20 Kynning frá Höfuðborgarstofu
 16:20 Samantekt og námskeiðslok
Ef næg þátttaka fæst: (lágmark er 10 manns)
16:40-18:45 Kynnisferð um höfuðborgarsvæðið
19:00 Kvöldverður