Fara í efni

Námskeið fyrir starfsfólk upplýsingamiðstöðva

Upplýsingamiðstöð
Upplýsingamiðstöð

Ferðamálastofa og upplýsingamiðstöð ferðamanna í Reykjavík gangast fyrir námskeiði fyrir starfsfólk upplýsingamiðstöðva þriðjudaginn 8. júní. Allt frá 1993 hefur Ferðamálastofa haldið námskeið fyrir starfsfólk upplýsingamiðstöðva.  Að þessu sinni verður námskeiðið haldið á Hótel Loftleiðum í þingsal 8. og hefst það kl. 12:45.

Ferðakostnaður greiddur
Til að jafna kostnað á milli upplýsingamiðstöðva mun Ferðamálstofa greiða fyrir ferðakostnað þátttakanda sem koma lengra að (hafa samband við Elías 535 5510), annar kostnaður verður greiddur af viðkomandi upplýsingamiðstöð.  Dagskráin hefst kl.12:45 þriðjudaginn 8. júní og lýkur kl. 16:00 þannig að flestir sem koma og fara með flugi geta farið fram og til baka samdægurs.

Skráning
Endilega tilkynnið þátttöku sem fyrst og í síðasta lagi á hádegi 7. júní. Skráning fer fram hér á vefnum.

Dagskrá:

12:45 ? 13:00  Skráning þátttakenda of afhending gagna

13:00 ? 13:15  Fyrir hverja eru upplýsingamiðstöðvar?
Elías Bj Gíslason,  forstöðumaður þróunarsviðs Ferðamálastofu.
        
13:15 ? 14:00  Daglegt starf á upplýsingamiðstöð
   Drífa Magnúsdóttir, verkefnastjóri upplýsingamiðstöð Reykjavíkur

14:00 ? 14.20  Handbók og gagnagrunnur Ferðamálastofu
   Elín Svava Ingvarsdóttir, verkefnisstjóri Ferðamálastofu

14:20 - 14:40  Öryggi ferðamanna á Íslandi.
   Jónas Guðmundsson, verkefnastjóri Landsbjargar

14:40 ? 15:00  Kaffi / te

15:00 ? 15:50  Ferðafólk kemur til að upplifa ? veitum þeim skemmtilega upplifun og góða þjónustu
   Gísli Blöndal, ráðgjafi

16:00   Samantekt og námskeiðslok.