Fara í efni

Námskeið fyrir starfsfólk upplýsingamiðstöðva

Upplýsingamiðstöð
Upplýsingamiðstöð

Ferðamálastofa og upplýsingamiðstöð ferðamanna í Reykjavík gangast fyrir námskeiði fyrir starfsfólk upplýsingamiðstöðva þriðjudaginn 7 júní. Að þessu sinni verður námskeiðið haldið á Grand Hótel (salurinn heitir Teigur) og hefst það kl. 12:45. Ferðamálastofa hefur haldið námskeið sem þetta fyrir starfsfólk upplýsingamiðstöðva allt frá árinu 1993. 

Til að jafna kostnað á milli upplýsingamiðstöðva mun Ferðamálstofa greiða fyrir ferðakostnað þátttakanda sem koma lengra að (senda upplýsingar á elias@ferdamalastofa.is um hvaða flug á að skrá ykkur í eða hafa samband við Elías í síma 535 5510 ), annar kostnaður verður greiddur af viðkomandi upplýsingamiðstöð.  Dagskráin hefst kl.12:45 þriðjudaginn 7. júní og lýkur kl. 16:00 þannig að flestir sem koma og fara með flugi geta farið fram og til baka samdægurs.

Skráning
Þátttaka tilkynnist fyrir 6. júní. Skráning fer fram hér á vefnum.

Dagskrá:


Dags:     Þriðjudaginn 7.  júní
Staður:   Grand Hótel, Teigur (nafnið á salnum)
Tími:      12.45 - 16.15


12:45 – 13:00  Skráning þátttakenda og afhending gagna

13:00 – 1310   Eru upplýsingamiðstöðvar mikilvægar?
                     Elías Bj Gíslason,  forstöðumaður þróunarsviðs Ferðamálastofu.
        
13:10 – 13:40  Daglegt starf á upplýsingamiðstöð
                     Drífa Magnúsdóttir, verkefnastjóri upplýsingamiðstöð Reykjavíkur

13:40 – 14.00  Handbók og gagnagrunnur Ferðamálastofu
                     Halldór Arinbjarnarson, upplýsingastjóri Ferðamálastofu

14:00 – 14:45  Öryggi ferðamanna á Íslandi og vefurinn www.safetravel.is
                     Jónas Guðmundsson, verkefnastjóri Landsbjargar

14:45 – 15:00  Kaffi / te

15:00 – 15:50  SAMstarfsmenn
                     Örn Árnason, leikari

15:50   Samantekt og námskeiðslok.

Þátttaka tilkynnist fyrir 6. júní. Skráning fer fram hér á vefnum.