Fara í efni

Myndir frá Ferðatorgi 2006

Ferðatorgið 2006
Ferðatorgið 2006

Fjöldi gesta heimsótti sýninguna Ferðatorg 2006 í Smáranum í Kópavogi um helgina. Það var nú haldið fjórða árið í röð og að þessu sinni samhliða stórsýningunni Matur 2006.

Á Ferðatorginu kynntu öll átta ferðamálasamtök landshlutanna sinn landshluta og þjónustu ferðaþjónustuaðila á sínu svæði. Aðrir sýnendur voru fyrirtæki og/eða þjónustuaðilar sem koma að ferðaþjónustu innanlands á einn eða annan máta. Meðfylgjandi myndir voru teknar við opnun Ferðatorgsins sl. föstudag.