Fara í efni

Stefna og framtíðarsýn í íslenskri ferðaþjónustu - fundir á Noðurlandi

Markaðsstofa Norðurlands, í samvinnu við atvinnu- og nýsköpunarráðuneytið og Samtök ferðaþjónustunnar, boðar til funda um mótun stefnu og framtíðarsýnar í íslenskri ferðaþjónustu.

Fundirnir verða haldnir á Akureyri á Hótel KEA þriðjudaginn 10. mars kl. 13:00-14:30 fyrir hagsmunaaðila í ferðaþjónustu og opinn íbúafundur kl. 15:00 – 16:30.

Á Húsavík verður fundurinn fimmtudaginn 12. mars kl 10-11:30 á veitingastaðnum Sölku.

Fundur verður einnig á Hvammstanga en verður hann auglýstur síðar.

Á fundinum verður rætt um framtíðarsýn íslenskrar ferðaþjónustu og kallað eftir ábendingum þátttakenda. Markmiðið er að byggja góðan grunn fyrir framtíð ferðaþjónustunnar og stuðla þannig að bættum lífskjörum í landinu. Mikilvægt er að haghafar í ferðaþjónustu hafi aðkomu að verkefninu og geti komið á framfæri ábendingum og leiðum til að efla ferðaþjónustuna og gera hana alþjóðlega samkeppnishæfa.

Verkefnahópi ráðuneytisins og Samtaka ferðaþjónustunnar er ætlað gera tillögu að stefnu og framtíðarsýn til lengri tíma og aðgerðaráætlun til skemmri tíma. Stefnt er að því að niðurstöður vinnunnar liggi fyrir í byrjun júní nk. Nánari upplýsingar eru áwww.ferdamalastefna.is.