Fara í efni

Möguleikar Íslands á þýska markaðinum

vetrarkonnun7
vetrarkonnun7

Ferðamálastofa efnir þann 15. nóvember til fundar þar sem kynnt verður skýrsla um möguleika Íslands á þýska ferðamarkaðinum.

Skýrslan var unnin af FUR (Forschungsgemeinschaft Urlaub und Reisen)  að beiðni ferðamálaráða Íslands, Grænlands og Færeyja og var fjármögnuð af NATA. Niðurstöðurnar voru kynntar á fundi á Vestnorden á dögunum og vöktu þá mikla athygli. Því var ákveðið að efna til sérstakrar kynningar á skýrslunni fyrir íslenska ferðaþjónustuaðila, enda þýski markaðurinn okkur afar mikilvægur, eins og allir vita. Skýrslan er unnin upp úr gögnum úr "German Reiseanalyse 2012" sem er umfangsmesta könnun sem reglulega er gerð á þýska ferðamarkaðinum. 

Fyrirlesari:  Ulf Sontag -  yfirskrift Möguleikar Íslands, Færeyja og Grænlands á þýska ferðamarkaðinum
Staður: Harpa - salur Róma
Dags og tími: 15. nóvember kl. 10.30 - 12:00
Aðgangur: Ókeypis
Skráning: skraning@ferdamalastofa.is

Mynd: Ragnar Th. Sigurðsson, arctic-images.com