Fara í efni

Minni ferðavilji frá fjarmörkuðum

Minni ferðavilji frá fjarmörkuðum

Evrópska ferðamálaráðið – ETC, í samvinnu við Eurail, var að birta niðurstöður nýrrar könnunar á ferðaáformum frá fjarmörkuðum, þ.e. þeirra sem búa utan Evrópu. Skýrslan nefnist Long-Haul Travel Barometer (LHTB) 1/2026). Fyrir íslenska ferðaþjónustu er áhugavert að rýna í niðurstöðurnar, ekki síst þar sem þær ná meðal annars til tveggja af okkar lykil mörkuðum, Bandaríkjanna og Kína. Auk þess að ná til ársins í heild eru fyrstu mánuðirnir einnig skoðaðir sérstaklega.

 

Niðurstöðurnar sýna að áhugi á ferðalögum til fjarlægari áfangastaða dregst saman fyrir árið 2026, þar sem ferðalangar verða varfærnari og neytendur setja aukna áherslu á öryggi, sveigjanleika og kostnað við ákvörðun um ferðalög sín. Í heildina áforma um 59% svarenda ferðalög til fjarlægari áfangastaða, samanborið við 63% frá fyrra ári. Er það einkum fjárhags- og tímaskortur sem ýtir mörgum í styttri ferðir eða ferðalög innanlands.

 

Sterk staða Evrópu

Þessi 59% sem hyggja á lengri ferðalög skiptast þannig að 42% nefna Evrópu sem áfangastað en 17% aðra áfangastaði. Af því má sjá að Evrópa heldur stöðu sinni sem eftirsóknarverður áfangastaður, einkum vegna þeirrar upplifunar að álfan sé eitt af öruggustu svæðum heims. Nefnir fólk þar bæði til sögunnar pólitískan stöðugleika en einnig  öryggi almennt m.a. í tengslum við náttúruvá.

 

Vísbendingar um breyttar ferðavenjur

Í skýrslunni koma fram vísbendingar um að ferðavenjur kunni að vera að breytast almennt. Fleiri kjósa sveigjanlegri bókanir, þ.e. áhugi á fullbúnum ferðapökkum heldur áfram að dvína. Þá er vaxandi áhugi á wellness- og slow-travel ferðamennsku.

 

Hvað með Ísland?

Hvað Ísland varðar þá nefna 8% svarenda það sem væntanlegan áfangastað, en þær niðurstöður eiga raunar bara við fyrstu mánuði ársins 2026. Álíka margir nefna Belgíu, Danmörk og Írland en önnur lönd í Vestur-Evrópu skora hærra. En sem fyrr segir er síðan vert að rýna niðurstöðurnar sérstaklega með tilliti til Bandaríkjanna og Kína, sem báðir eru lykilmarkaðir Íslands.

 

Mikill áhugi frá Kína

Kína er áfram eitt helsta markaðssvæðið fyrir ferðalög til Evrópu en 59% kínverskra svarenda í könnuninni segjast íhuga ferð til Evrópu árið 2026. Þetta er hæsta hlutfall allra markaða sem könnunin náði til, jafnvel þó nokkuð hafi dregið úr framtíðaráformum (hlutfallið var 72% fyrir árið 2025).

 

Bandarískir neytendur varfærnari

Á móti heldur áhugi frá Bandaríkjunum áfram að veikjast. Þannig sögðust 34% Bandaríkjamanna sem svöruðu könnuninni íhuga ferðalag til Evrópu árið 2026 en talan var 37% fyrir ári síðan og 45% fyrir tveimur árum. Þetta, segja skýrsluhöfundar, endurspeglar aukna óvissu og efnahagslega varfærni meðal bandarískra neytenda.