Fara í efni

Mid-Atlantic hefst í dag

Midatlantic 2007
Midatlantic 2007

Hin árlega Mid-Atlantic kaupstefna hefst í dag og stendur fram á sunnudag. Kaupstefnan er á vegum Icelandair og er markmið hennar að tengja saman kaupendur og seljendur ferðaþjónustu í Bandaríkjunum og Evrópu.

Kaupstefnan er árlegur lykilviðburður í ferðaþjónustunni og haldin til að viðhalda og auka ferðamannastraum til Íslands. Fulltrúar á kaupstefnunni eru nú um 300 alls frá 12 löndum. Hér eru fulltrúar frá löndum sem hafa mikil ferðaþjónustutengsl við Ísland í Evrópu og Norður-Ameríku en einnig öðrum fjarlægari löndum. Þátttakendur eru fulltrúar ferðaskrifstofa, hótela, bílaleiga, skemmtigarða og margvíslegra annarra ferðaþjónustufyrirtækja og að auki taka þátt ferðamálaráð Norðurlandanna, ferðamálaráð þeirra svæða og borga sem Icelandair flýgur til í Norður-Ameríku og jafnframt koma sendiráð þessara landa á Íslandi að kaupstefnunni.

?Þessi kaupstefna er nú haldin á tíma þegar mikilvægi ferðaþjónustunnar fyrir íslenskt samfélag er að aukast mjög, en jafnframt er ótryggt efnahagsástand í flestum viðskiptalöndum okkar. Þess vegna er mikilvægt fyrir okkur að halda ótrauð áfram og grípa þau viðskiptatækifæri sem eru undirstaðan í ferðþjónustunni. Hér eru íslenskir aðilar að selja sína þjónustu, en einnig t.d.bandarísk fyrirtæki að kaupa ferðaþjónustu frá Norður-Evrópu sem þeir síðan selja neytendum vestra og öfugt. Ísland er miðpunkturinn í öllu þessu starfi, líkt og í leiðarkerfi okkar, en á kaupstefnunni eru kynningarfundir, sölusýningar, stuttar ferðir og þemakvöld,?segir Helgi Már Björgvinsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Icelandair.

Forseti borgarstjórnar setur Mid-Atlantic kaupstefnuna í Ráðhúsinu í kvöld, 5. febrúar, klukkan 19.00

Nánari upplýsingar er að finna á vefsíðu Mid-Atlantic