Fara í efni

Mid-Atlantic hefst í dag

Mid-Atlantic 2010
Mid-Atlantic 2010

Hin árlega Mid-Atlantic kaupstefna hefst í dag og stendur fram á sunnudag. Kaupstefnan er á vegum Icelandair og er markmið hennar að tengja saman kaupendur og seljendur ferðaþjónustu í Bandaríkjunum og Evrópu.

Kaupstefnan er árlegur lykilviðburður í ferðaþjónustunni og haldin til að viðhalda og auka ferðamannastraum til Íslands. Fulltrúar á Mid-Atlantic eru nú um 500 alls frá 14 löndum. Að þessu sinni koma mun fleiri fulltrúar erlendis frá en undanfarin ár, eða um 350. Þar af er von á um 150 kaupendum ferðaþjónustu frá Bandaríkjunum og Kanada, sem sýnir óvenju mikinn áhuga.

Hingað til lands eru komnir fulltrúar frá þeim löndum sem hafa mikil ferðaþjónustutengsl við Ísland í Evrópu og Norður-Ameríku. Þátttakendur eru fulltrúar ferðaskrifstofa, hótela, bílaleiga, skemmtigarða og margvíslegra annarra ferðaþjónustufyrirtækja og að auki taka þátt ferðamálaráð á norðurlöndum og ferðamálaráð þeirra svæða og borga sem Icelandair flýgur til í Norður-Ameríku.

?Nú er mikilvægi ferðaþjónustunnar fyrir íslenskt samfélag að aukast mjög og þess vegna er áríðandi fyrir okkur að halda ótrauð áfram og grípa þau viðskiptatækifæri sem eru undirstaðan í ferðþjónustunni. Aukinn áhugi erlendis frá er þess vegna mjög ánægjulegur. Þetta er einn helsti vettvangur fyrir íslenska ferðaþjónustu að selja og kynna sína vöru beint fyrir kaupendum. En einnig eru hér t.d.bandarísk fyrirtæki að kaupa ferðaþjónustu frá Norður-Evrópu sem þeir síðan selja neytendum vestra og öfugt. Ísland er miðpunkturinn í öllu þessu starfi, líkt og í leiðarkerfi okkar, en á kaupstefnunni eru kynningarfundir, sölusýningar, stuttar ferðir og  þemakvöld,? segir Helgi MárBjörgvinsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Icelandair.

Forseti borgarstjórnar setur Mid-Atlantic kaupstefnuna í Ráðhúsinu í kvöld, 4. febrúar, klukkan 19.00

Nánari upplýsingar er að finna á vefsíðu Mid-Atlantic