Fara í efni

Metumsvif á næsta ári hjá Icelandair

Icelandair
Icelandair

Flugáætlun Icelandair fyrir árið 2012 er sú stærsta í sögu þess og um 14% umfangsmeiri en á þessu ári. Þá verður vetraráætlun 2012-2013 meiri að umfangi en sumaráætlun félagsins var fyrir tveimur árum.

Árlegur markaðsfundur
Þetta var meðal þess sem fram kom á árlegum markaðsfundi Icelandair í dag. Þar kynna sérfræðingar og stjórnendur Icelandair á erlendum mörkuðum þær rannsóknir á stöðu og horfum í efnahagsmálum og ferðaheiminum sem félagið byggir áætlanir sínar á, segir í frétt frá Icelandair.

Denver nýr heilsársáfangastaður
Meðal nýjunga á komandi ári má nefna að nýr heilsárs áfangastaður, Denver í Colorado, bætist við og ferðum er fjölgað til ýmissa borga í Bandaríkjunum og Evrópu. Gert er ráð fyrir að farþegar félagsins verði um 2 milljónir á árinu 2012.

Aukning utan háannatímanns
"Við kynntum áætlun okkar fyrir rúmum tveimur mánuðum og bókanir síðan þá hafa verið sterkar og lofa góðu fyrir næsta ár. Sérstaklega er ánægjulegt hversu vel bókanir til og frá Denver hafa farið af stað. Að undanförnu hafa aðrir verið að boða komu sína á flugmarkaðinn til og frá Íslandi, sem er viðurkenning fyrir ferðaþjónustuna. Sú viðbót er þó langmest yfir hásumarið. Hvað Icelandair varðar er ætlunin að auka ferðamannastraum utan háannatímans meðal annars með því að hefja flug til og frá Denver allt árið um kring og auka vetrarframboð hlutfallslega meira en yfir sumarið. Vetraráætlun 2012-2013 verður þannig meiri að umfangi en sumaráætlun var fyrir tveimur árum“, segir Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri í fréttinni.

31 áfangastaður
Auk fjögurra vikulegra ferða til nýja áfangastaðarins mun Icelandair fjölga ferðum til Washington og Seattle í Bandaríkjunum, til allra höfuðborga Norðurlandanna og Þrándheims, Stavanger og Bergen í Noregi, til Billund í Danmörku, til Munchen, Amsterdam, Brussel og Parísar á meginlandi Evrópu og til Manchester og Glasgow á Bretlandseyjum. Alls verða áfangastaðirnir 31 á næsta ári.