Fara í efni

Mesti háannatími ferðaþjónustunnar fer í hönd - 6 milljarða viðskipti næstu tvær vikur

Skrifstofa FMR í Reykjavík
Skrifstofa FMR í Reykjavík

Gera má ráð fyrir að næstu vikur verði þær annasömustu í íslenskri ferðaþjónustu frá upphafi. Fer þar saman  mesti sumarleyfistími Íslendinga og  toppur ársins í komu erlendra gesta.  ?Það reynir eðlilega á þanþolið í kerfinu og mikilvægt að hægt sé að halda allri þjónustu og gæðum í samræmi við það sem kynnt hefur verið og væntingar gestanna? segir Magnús Oddsson ferðamálastjóri.

?Mér sýnist að við séum að fá um 40.000 erlenda gesti hingað á næstu  tveimur vikum þessa háannatíma auk mikils fjölda Íslendinga á ferð um landið. Þetta skapar eðlilega mikil viðskipti og skilar þjóðarbúinu verulegum tekjum.

Gera má ráð fyrir miðað við kannanir og tekjur undanfarinna ára að þessar tvær vikur munu erlendir gestir skila okkur um 4 milljarða gjaldeyristekjum í þjóðarbúið og með innlenda hlutanum séum við að tala um viðskipti fyrir um 6 milljarða  þessar tvær vikur? bætir Magnús við.