Fara í efni

Markaðsstofa Suðurnesja tekur við upplýsingamiðstöðinni í Leifsstöð

ms fle
ms fle

Markaðsstofa Suðurnesja hefur tekið yfir rekstur Upplýsingamiðstöðvar ferðamála í Flugstöð Leifs Eiríkssonar af Sandgerðisbæ með samþykki Isavia ohf. og Ferðamálastofu. Fyrir rekur Markaðsstofan Upplýsingamiðstöð Suðurnesja í Reykjanesbæ. Markaðsstofan hefur jafnframt samið við ITA  um að halda úti  alhliða bókunarþjónustu í tengslum við Upplýsingamiðstöðina í Flugstöð Leifs Eiríkssonar.  Á næstu dögum verða gerðar breytingar í komusal á útliti og starfsaðstöðu við Upplýsingamiðstöðina til að geta sinnt bókunarþjónustunni betur. Með því að bjóða upp á aukna þjónustu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar vonast Markaðsstofan og Isavia ohf. til þess að erlendir ferðamenn verði ánægðari og öruggari um ferðir sínar um Ísland.

Þeir sem eru á myndinni frá vinstri:

Yngvi Örn Stefánsson framkvæmdastjóri ITA; Guðný María Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Isavia ohf.; Ólöf Einarsdóttir hjá UMFLE; Helga Erla Gunnarsdóttir hjá UMFLE og Kristján Pálsson, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Suðurnesja.