Fara í efni

Markaðsátak í ferðamálum í haust og vetur

Össur - Ólöf - Vestnorden 2008
Össur - Ólöf - Vestnorden 2008

Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra tilkynnti í gær um að allt að 100 milljónum króna verður varið í sérstakt átak á næstu mánuðum til að markaðssetja Ísland erlendis sem áhugaverðan áfangastað í haust og vetur. Um er að ræða samstarfsverkefni iðnaðarráðuneytisins og fyrirtækja í ferðaþjónustu undir forystu Ferðamálastofu.

Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra og Ólöf Ýrr
Atladóttir ferðamálastjóri á Vestnorden í gær.

Samdráttur er talinn fyrirsjáanlegur í ferðaþjónustu á heimsvísu og blikur á lofti í greininni hérlendis að mati ferðaþjónustuaðila. Ríkisstjórnin hefur brugðist við óskum þeirra um aðgerðir með því að samþykkja að veita 50 milljónum króna í sérstakt markaðsátak erlendis í því skyni að hvetja til Íslandsferða í haust og í vetur ? og reyna þannig að efla greinina utan háannatímans. Ferðaþjónustufyrirtæki taka þátt í átakinu með framlögum umfram núverandi markaðsáætlanir og er áætlað að alls verði um 100 milljóna króna viðbótarfé að ræða til ráðstöfunar í þetta verkefni.

Auglýsingaherferð á helstu vetrarmörkuðum
Ferðamálastofa hefur umsjón með markaðsátakinu og er undirbúningur þess á lokastigi. Verður fjármununum einkum varið til auglýsingaherferða á helstu vetrarmörkuðum ferðaþjónustunnar; í Bandaríkjunum, annarsstaðar á Norðurlöndunum, Bretlandseyjum og helstu markaðssvæðum á meginlandi Evrópu. Ekki er um styrki að ræða til einstakra ferðaþjónustuaðila, heldur almennt markaðs- og landkynningarverkefni sem ætlað er að auka áhuga erlendra ferðamanna á Íslandi sem áfangastað á næstu misserum.

Styrkja enn frekar rekstrargrundvöll ferðaþjónustunnar
Markaðssetning á Íslandi utan háannatímans hefur verið að skila góðum árangri og hefur orðið til þess að styrkja enn frekar rekstrargrundvöll ferðaþjónustunnar innanlands. Í ljósi þess samdráttar sem blasir nú við í ferðalögum á heimsvísu er hins vegar nauðsynlegt að spýta í lófana. Vegna gjaldeyrisþróunarinnar undanfarið er jafnframt sóknarfæri á erlendum mörkuðum fyrir ferðaþjónustuna þar sem mun hagkvæmara er nú fyrir erlenda ferðamenn að ferðast til Íslands en verið hefur.